Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir ráðgjöfum á lista
Ekki er um skilgreind verkefni að ræða á þessu stigi heldur er um ráðgjafalista og mun umfang og eðli verkefna ráðast af eftirspurn frá samstarfsaðilum s.s. alþjóðastofnunum. Ríkiskaup hefur umsjón með skráningu á ráðgjafalistana og eru nú fimm auglýsingar fyrir ráðgjafaskráningu aðgengilegar á http://utbodsvefur.is/.
Þau sérfræðisvið sem sérstaklega er óskað eftir, mótast af framboði og eftirspurn frá samstarfsaðilum. Einungis er óskað eftir sérfræðingum sem uppfylla skilyrði A og B ráðgjafa:
A: Ráðgjafi með háskólapróf í viðeigandi grein skv. sérfræðisviði og meira en 20 ára reynslu í faginu.
B: Ráðgjafi með háskólapróf í viðeigandi grein skv. sérfræðisviði og meira en 10 ára reynslu í faginu.
Verkefnin verða unnin samkvæmt skilgreindum beiðnum og verklýsingum frá samstarfsaðilum s.s. verkefnisteymum Alþjóðabankans eða öðrum alþjóðlegum samstarfsstofnunum. Verk geta verið af öllum stærðargráðum en búist er við að algengt verði að verkefni verði á bilinu 50-200 tímar. Utanríkisráðuneytið mun halda utan um skrá áhugasamra ráðgjafa og fyrirtækja og gera staðlaðan samning um verkefni beint við viðkomandi fyrirtæki/einstakling.
Skráning á listann tryggir ekki að viðkomandi fyrirtæki/ráðgjafi fái verkefni.