Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?
Pólitískt andrúmsloft alþjóðasamfélagsins hefur tekið stórfelldum breytingum síðastliðin misseri sem hefur áhrif á stöðu Íslands og þær áskoranir sem íslensk stjórnvöld standa frammi fyrir. Þetta kallar á stöðugt endurmat á hagsmunagæslu Íslands og hlutverki landsins á alþjóðavettvangi. Hvaða áhrif hefur breytt valdajafnvægi í heiminum á stöðu smáríkis í alþjóðakerfinu?
Tilgangur ráðstefnunnar er að leiða saman sérfræðinga og fræðimenn, og ekki síst alla þá sem áhuga hafa á alþjóðamálum á Íslandi, til opinnar umræðu um helstu áskoranir og tækifæri Íslands í utanríkismálum.
Dagskráin verður fróðleg og fjölbreytt. Umfjöllunarefnin spanna vítt svið alþjóðamála, meðal annars verður rætt um helstu áskoranir Íslands í breyttu öryggisumhverfi, þjóðernishyggju, áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóðum, norræna módelið, áhrif samfélagsmiðla á grasrótarhreyfingar og alþjóðastjórnmál, svo eitthvað sé nefnt.
Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Norðurlönd í fókus og utanríkisráðuneytið standa fyrir ráðstefnunni "Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?" í Norræna húsinu á morgun, miðvikudaginn 18. apríl 2018 frá kl. 9:00 til 18:30.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Nánari dagskrá og skráning á www.ams.hi.is