Skapa þarf samfélög sem bjóða raunveruleg tækifæri fyrir alla
Ryðja verður burt jafnt áþreifanlegum sem menningarlegum hindrunum til þess að skapa samfélög, sem bjóða upp á raunveruleg tækifæri fyrir alla, alls staðar, sögðu fulltrúar Sameinuðu þjóðanna á alþjóðlegum degi fatlaðra síðastliðinn sunnudag, 3. desember. Upplýsingaskrifstofa SÞ, UNRIC, greindi frá.
"Fólk sem býr við fötlun hefur hlutverki að gegna í viðleitni til að ná Heimsmarkmiðum um sjálfbæra þróun sem tryggja víðtæka þátttöku. Mikilvægt atriði í svokallaðri áætlun 2030 um sjálfbæra þróun er "að engan beri að skilja eftir," segir í frétt UNRIC.
"Samt sem áður er fólk sem býr við fötlun, of oft útilokað frá því að semja, gera áætlanir og hrinda í framkvæmd stefnumörkun og áætlunum sem hafa áhrif á líf þeirra. Fatlaðir sæta of oft mismunun á vinnumarkaði og hvað varðar aðgang að menntun og annarri þjónustu," sagði António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í ávarpi. "Við verðum að beisla kraft og kunnáttu þessa hóps til að hanna og þróa viðráðanlegar og frumlegar lausnir til að tryggja jafnrétti fyrir alla," segir Guterres.