Rannsókn á kynferðislegu ofbeldi í hjálparstarfi
Síðustu vikur hafa einkennst af frásögnum kvenna af kynferðislegri áreitni og nú hefur bandaríski fréttamiðillinn Devex sem sérhæfir sig í fréttum af þróunar- og hjálparstarfi ákveðið að kalla eftir ítarlegri frásögnum um áreitni og ofbeldi á þessu sviði. Samkvæmt könnun sem Devex vitnar til í frétt þekkja 86% starfsmanna í þróunar- og hjálparstarfi til samstarfsfélaga sem hafa upplifað kynferðislegt ofbeldi í tengslum við vinnu sína.
Myllumerki er #aidtoo.
We're investigating sexual violence in the aid industry/ Devex