Auglýst eftir háskólamenntuðum fulltrúum á sviði þróunarsamvinnu og upplýsingafulltrúa Heimsmarkmiðanna
Utanríkisráðuneytið óskar eftir að ráða háskólamenntaða fulltrúa til starfa á sviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu s.s. á sviði tvíhliða og fjölþjóðlegrar þróunarsamvinnu, svæðasamstarfs, samstarfs við atvinnulífið og borgarasamtök auk Heimsmarkmiða SÞ.
Ennfremur óskar ráðuneytið eftir að ráða upplýsingafulltrúa á sviði Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Upplýsingafulltrúinn þróar og vinnur upplýsingaefni til að auka meðvitund og skilning á Heimsmarkmiðunum og hugar sérstaklega að samþættingu þeirra við starfsemi Stjórnarráðsins.
Umsóknarfrestur um stöðurnar er til og með 18. desember 2017. Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected], merkt annars vegar "Háskólamenntaðir fulltrúar á sviði þróunarsamvinnu 2017" og hins vegar "Upplýsingafulltrúi á sviði Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna 2017."
Ráðuneytið hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um störfin. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvarðanir um ráðningar hafa verið teknar.
Nánari upplýsingar um fulltrúana í alþjóðlegri þróunarsamvinnu veitir Þórarinna Söebech
([email protected]), s. 5459900 en Urður Gunnarsdóttir ([email protected]) veitir upplýsingar um fulltrúa Heimsmarkmiðanna.