Neyðarsöfnun UN Women stendur sem hæst
https://youtu.be/PVxz0BtUVb8 Neyðarsöfnun Landsnefndar UN Women í þágu kvenna í Zaatari flóttamannabúðunum í Jórdaníu stendur nú sem hæst. Birt hafa verið nokkur áhrifamikil kvikmyndabrot úr ferð fulltrúa UN Women með Elizu Reid forsetafrú og Evu Maríu Jónsdóttur verndara samtakanna. Hér er eitt þeirra sem sýnir Elizu Reid hitta 18 ára stúlku, Zaad Alkhair, sem missti bróðir sinn í stríðinu í Sýrlandi. Zaad kenndi sjálfri sér ensku eftir að hún komst í kynni við griðastaði UN Women í Zaatari flóttamannabúðunum.
Konur og bön eru um 80% íbúa í Zaatari-flóttamannabúðunum í Jórdaníu og eiga þar erfitt uppdráttar. Flestar konur í búðunum eru margra barna mæður sem sárlega þurfa vernd, öryggi og stuðning til að koma undir sig fótunum á ný.
UN Women á Íslandi hefur hrint af stað neyðarsöfnun fyrir konur og stúlkur frá Sýrlandi sem dvelja í flóttamannabúðunum að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá samtökunum.
Um 80 þúsund Sýrlendingar dvelja í Zaatari-búðunum eftir að hafa flúið stríðsátök og ofbeldi í heimalandi sínu. Búðirnar eru þær næststærstu í heiminum og jafnframt fjórða fjölmennasta borg Jórdaníu.
Nánar á vef UN Women