Að sjá og upplifa
Eins og venjulega eru nemendur Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna búnir að vera önnum kafnir í haust. Fyrir utan námið sjálft sem er mjög krefjandi þurfa þeir að leggja hart að sér til að aðlagast framandi umhverfi.
En að sjálfsögðu gefst annað slagið stund á milli stríða. Vettvangsferðirnar sem skólin skipuleggur eru t.d. kærkomnar til að sjá, upplifa, slaka á og mynda tengsl, eins og skólinn tístaði um á dögunum.
Á Flickr-vefnum er að finna margar skemmtilegar myndir úr ferðinni. Ein þeirra er hér að ofan, tekin á Snæfellsnesi.