Ill meðferð á börnum opinberuð í tölfræðigögnum UNICEF
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) vekur athygli á útbreiddu ofbeldi í garð barna hvarvetna í heiminum í nýrri skýrslu þar sem megin niðurstöðurnar eru þær að þrjú börn af hverjum fjórum hafa upplifað ofbeldi.
Aðrar athyglisverðar niðurstöður eru þessar:
- Um það bil 300 milljónir barna í heiminum á aldrinum, tveggja til fjögurra ára, eru beitt líkamlegum refsingum eða hreytt í þau ónotum af foreldrum eða öðrum sem treyst hefur verið fyrir börnunum.
- Tæplega 130 milljónir nemenda, 13 til 15 ára hafa orðið fyrir einelti.
- Á hverri sjöundu mínútu er unglingur myrtur. Árið 2015 létust 82 þúsund unglingar vegna ofbeldisverka.
- Yfir 700 milljónir barna á skólaaldri, 6-17 ára, búa í löndum þar sem líkamleg refsing er ekki bönnuð.
- Fimmtán milljónir stúlkna hafa við nítján ára aldur upplifað kynferðislega nauðung, meðal annars nauðgun - í flestum tilvikum af geranda sem þær þekkja.
- Samkvæmt gögnum UNICEF frá 30 þjóðríkjum hefur aðeins 1% stúlkna leitað til fagaðila eftir kynferðislegt ofbeldi.
Skýrslan nefnist A Familiar Face: Violence in the Lives of Children and Adolescents.
Að mati UNICEF dregur ofbeldi í garð barna, fyrir utan ónauðsynlegan sársauka og þjáningu sem það veldur, úr sjálfsöryggi þeirra og truflar eðlilegt þroskaferli. Tölfræðin sem dregin er saman í skýrslu samtakanna sýnir að börn verða fyrir ofbeldi á öllum tímum bernskunnar, á ólíkum stöðum, og oftast af hendi þeirra sem þau treysta og hafa samskipti við dag hvern. Litið er á ofbeldi í hvaða formi sem því er beitt sem brot á réttindum barna. UNICEF segir að fyrsta skrefið til þess að útrýma ofbeldi gegn börnum sé með því að draga fram tölfræðilegar staðreyndir.
Violence against children pervasive in homes, schools and communities - UNICEF