Óskað eftir styrkumsóknum frá borgarasamtökum vegna mannúðarverkefna
Utanríkisráðuneytið óskar eftir styrkumsóknum frá íslenskum borgarasamtökum vegna mannúðarverkefna. Umsóknir skal senda á netfangið [email protected] fyrir kl. 23:59 miðvikudaginn 29. nóvember næstkomandi.
Ákveðið hefur verið að veita allt að 100 milljónum króna til mannúðarverkefna borgarasamtaka sem bregðast við neyð fólks vegna ástandsins í Sýrlandi.
Við þessa styrkúthlutun verður farið eftirverklagsreglum frá 2015. Í reglunum er að finna vinnulag og önnur viðmið sem notuð eru við mat á umsóknum auk skilyrða sem borgarasamtök verða að uppfylla til að geta sótt um styrki.
Horft er til gæða og væntanlegs árangurs verkefna. Sérstök athygli er vakin á því að búist er við að verkefnin svari alþjóðlegum neyðarköllum (e. appeal), s.s. frá samræmingarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna vegna mannúðarmála ( UNOCHA / ReliefWeb ) og Alþjóðaráði Rauða krossins og Rauða hálfmánans ( ICRC). Einnig er mikilvægt að inngrip og framkvæmd verkefna íslenskra borgarasamtaka sé samhæft aðgerðum annarra á vettvangi. Litið er á skilvirkni og kröfur gerðar um vönduð og fagleg vinnubrögð, sem eru lykilatriði við ákvarðanatöku um framlög. Við mat á umsóknum verður m.a. stuðst við viðmið SPHERE handbókarinnar til að tryggja lágmarksaðstoð við haghafa.
Verklagsreglur utanríkisráðuneytisins byggjast m.a. á alþjóðlegri stefnu og starfsaðferðum við styrkveitingar úr opinberum sjóðum og stefnumiðum.
Einungis verður tekið við umsóknum sem skilað er inn á þar til gerðum eyðublöðum sem finna má á vefalþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands, en þar má einnig finna nánari upplýsingar um verklagsreglur, sem og aðrar hagnýtar upplýsingar.