Ársfundir Alþjóðabankans og Alþjóðgjaldeyrissjóðsins
Ársfundir Alþjóðabankasamsteypunnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins fara fram 13. - 15. október í Washington DC, en þá hittist jafnframt sameiginleg Þróunarnefnd stofnananna.
Á fundunum verða m.a. til umfjöllunar ný Þróunarskýrsla bankans (World Development Report) um ástand í menntamálum - (sem sagt var frá í síðasta Heimsljósi) og skýrsla um hámörkun fjármögnunar til þróunar með aðkomu einkageirans auk umræðna um endurútreikning á atkvæðavægi, hlutafjáraukningu og framtíðarsýn bankans.
Ulla Tørnæs þróunarmálaráðherra Danmerkur situr í Þróunarnefndinni fyrir hönd kjördæmis Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Hún situr fund nefndarinnar og flytur sameiginlegt ávarp kjördæmisins.