Hægt að styðja 235 malavískar stelpur fyrir íslenskt söfnunarfé
Hægt verður að styðja 235 malavískar stelpur fyrir fé sem safnaðist á "Bjór & bindi" viðburðinum á Kex Hostel í síðustu viku. Alls söfnuðust tæpar 120 þúsundir króna á viðburðinum en þar komu fram rappararnir Tay Grin frá Malaví og Tiny og Gísli Pálmi frá Íslandi ásamt tónlistarkonunni Hildi. Mesta athygli fjölmiðla vakti dans Elísar Reid forsetafrúar með malavíska rapparanum og rapp bresku sendiherrahjónanna, Michaels og Sawako Nevin.
Tay Grin er He for She-leiðtogi og ferðast um heiminn til að vekja athygli á málstaðnum.
Tónleikarnir á Kex voru haldnir til þess að safna fé til kaupa á margnota dömubindum fyrir stúlkur í Malaví til að þær geti mætt í skóla meðan á blæðingum stendur og flosni síður upp úr námi.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Elísa Reid forsetafrú ávörpuðu gesti . Michael Nevin sendiherra kynnti Malaví og sagði meðal annars frá þróunarsamvinnu Íslands og Malaví. Sjálfur var hann þar um árabil sem sendiherra Breta.