Norræni dagurinn í Kampala
Áttunda árið í röð fögnuðu Norðurlandaþjóðirnar sameiginlega þjóðhátíðardegi í Kampala á dögunum. Noregur, Danmörk, Svíþjóð og Ísland eiga öll þjóðhátíðardaga í maí og júní og hafa því tekið þann kostinn að láta af sér vita og gleðjast með vinum í Úganda á sameiginlegri hátíð.
Þá hafa sendiráðin jafnan sameinast um að senda frá sér blaðagrein sem tekur á einhverju sem þau telja til framfara horfa í Úganda. Að þessu sinni var umræðuefni upplýsinga- og tjáningarfrelsi. Sama þema var í ræðu kvöldsins þar sem Sam Kutesa utanríkisráðherra var heiðursgestur.Talsvert stór hópur Norðurlandabúa er í Úganda og einnig fólk sem kemur að þróunarsamvinnu, viðskiptum, félagasamtökum og hefðbundinni utanríkisþjónustu. Gestalistinn var því langur, um 500 manns.
Að sögn Stefáns Jóns Hafstein forstöðumanns íslenska sendiráðsins í Úganda hefur sú hefð skapast að ríkin sameinast ekki bara um eitt málefni sem þau vilja leggja áherslu á heldur hafa þau líka kappkostað að bjóða upp á mat og drykk frá heimalöndum sem er ákaflega vel þokkað.
Á myndinni eru t.f.v. Mogens Petersen sendiherra Dana, Stefán Jón Hafstein forstöðumaður íslenska sendiráðsins, Urban Andersson sendiherra Svía og Susan Eckey sendiherra Noregs.