Fjögur verkefni Rauða krossins á Íslandi fá styrk frá ráðuneytinu
Rauði krossinn á Íslandi hlaut styrki frá utanríkisráðuneytinu að upphæð 75 milljónir króna vegna fjögurra mannúðarverkefna. Verkefnin eru í Jemen, Suður-Súdan, Sýrlandi og Sómalíu. Verkefnin eru þessi:
Neyðaraðstoð vegna fæðuskorts og vopnaðra átaka í Jemen (30 milljónir)
Verkefni þessu er ætlað að bregðast við neyðarbeiðni Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) vegna fæðuskorts og vopnaðra átaka í Jemen. Meginmarkmið verkefnisins er að bregðast við þeim fjölþætta mannúðarvanda sem viðvarandi er í Jemen. Verkefnið felur í sér þverfaglega neyðaraðstoð sem stuðlar að því að efla viðnámsþrótt almennra borgara sem líða fyrir fæðuskort á átakasvæðum. Í nafni alþjóðlegra mannúðarlaga er verkefninu sérstaklega ætlað að svara grunnþörfum og tryggja vernd þeirra sem ekki geta talist beinir þátttakendur í átökunum.
Markmið verkefnisins eru þannig eftirfarandi:
*Tryggja óbreyttum borgurum vernd gagnvart átökum stríðandi fylkinga, í samræmi
við ákvæði alþjóðlegra mannúðarlaga.
*Stuðla að auknu aðgengi að nauðsynlegri og tímanlegri læknisaðstoð og
heilbrigðisþjónustu.
*Fólk á vergangi og aðrir íbúar fá grunnþörfum sínum fullnægt, m.a. með
dreifingu matvæla.
*Stuðla að sameiningu fjölskyldna sem hafa orðið viðskila vegna átakanna.
*Tryggja að lífsskilyrði og meðhöndlun fanga séu viðunandi og samræmis
alþjóðlegum mannúðarlögum.
Neyðaraðstoð vegna fæðuskorts og yfirvofandi hungursneyðar í Sómalíu (15 milljónir)
Verkefni þessu er ætlað að bregðast við neyðarbeiðni Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) vegna fæðuskorts og yfirvofandi hungursneyðar í Sómalíu.
Markmið verkefnisins er tvíþætt:
*Bregðast við brýnni
næringarþörf berskjaldaðs fólks, með áherslu á þungaðar konur, konur með börn á
brjósti, börn undir 5 ára aldri og fjölskyldur sem misst hafa ráð sín til
lífsviðurværis.
*Draga úr heilbrigðisáhættu íbúa til lengri tíma, þar sem áhersla er lögð á að
koma í veg fyrir vatnsborna sjúkdóma og hindra útbreiðslu smitsjúkdóma.
Barátta gegn kynferðislegu ofbeldi í Sýrlandi (15 milljónir)
Verkefni þessu er ætlað að bregðast við sérstakri neyðarbeiðni Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) gegn kynferðislegu ofbeldi í viðvarandi átökum í Sýrlandi. Meginmarkmið verkefnisins er að vinna gegn kynferðislegu ofbeldi í Sýrlandi, með það að augnamiði að:
*Draga úr aukningu kynferðislegs ofbeldis.
*Fyrirbyggja og takmarka langvarandi og alvarlegar afleiðingar kynferðislegs
ofbeldis með því að auka og, eftir fremsta megni, tryggja aðgengi fórnarlamba
að heilbrigðisþjónustu.
*Auka viðbúnað, sýnileika og afkastagetu heilbrigðisþjónustu svo mögulegt sé að
mæta lífsnauðsynlegum þörfum fórnarlamba kynferðislegs ofbeldis.
*Vekja viðeigandi valdhafa, s.s. stjórnvöld og stríðandi fylkingar, til
vitundar um ákvæði alþjóðlegra mannúðarlaga, þ.m.t. viðurlög, lögbundna ábyrgð
og skyldur þeirra í vopnuðum átökum í samræmi við Genfarsamninga og þá
sérstaklega skyldur er varða virðingu og vernd til handa óbreyttum borgurum,
með áherslu á kynferðislegt ofbeldi.
Barátta gegn kynferðislegu ofbeldi í Suður-Súdan (15 milljónir)
Verkefni þessu er ætlað að bregðast við sérstakri neyðarbeiðni Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) gegn kynferðislegu ofbeldi í viðvarandi átökum í Suður-Súdan. Meginmarkmið verkefnisins er að vinna gegn kynferðislegu ofbeldi í Suður-Súdan, með það að augnamiði að: