Fundur með framkvæmdastjóra Alþjóðaviðskiptamiðstöðvarinnar
María Erla Marelsdóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu og Högni S. Kristjánsson sendiherra og fastafulltrúi Íslands í Genf áttu í dag fund með frú Arancha Gonzáles Laya, framkævmdastjóra Alþjóðaviðskiptamiðstöðvarinnar (International Trade Centre, ITC) í Genf.
ITC er sameiginleg stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og Sameinuðu þjóðanna og er eina alþjóðlega þróunarstofnunin sem leggur sérstaka áherslu á alþjóðavæðingu lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
ITC gerir fyrirtækjum á mörkuðum í þróunarríkjum að verða samkeppnishæfari og tengjast alþjóðamörkuðum á sviði viðskipta og fjárfestinga og stuðla þannig að vexti og sköpun atvinnutækifæra, sérstaklega fyrir konur, ungt fólk og fátæk samfélög.
Auk Maríu Erlu og Arancha González eru á myndini Högni S. Kristjánsson sendiherra og fastafulltrúi Íslands í Genf, Edda Björk Ragnarsdóttir og Ragnhildur Arnórsdóttir, Vanessa Erogbogbo og Zeynep Ozgen.