Yfir þúsund flóttamenn hafa farist á Miðjarðarhafi frá áramótum
https://youtu.be/8NKJxcVlFRM Rúmlega eitt þúsund
flóttamenn hafa drukknað á Miðjarðarhafinu það sem af er þessu ári.
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) hefur frá áramótum skráð
1,073 einstaklinga sem ýmist hafa drukknað eða er saknað á sjóleiðinni
hættulegu á milli Líbíu og Ítalíu. Á síðasta ári var komið undir lok
maímánaðar þegar dauðsföllin voru komin yfir þúsund.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) segir að börn í þessum hópi séu að minnsta kosti 150 en líkast til séu börnin miklu fleiri sem hafa drukknað því algengt sé að dauðsföll foreldralausra barna séu ekki skráð. Breska dagblaðið Independent segir að hættan í þessum ferðum sé svo mikil að hælisleitendur á óöruggum bátkoppum skrifi símanúmer á björgunarvesti til að tryggja að aðstandendur fái að vita um örlög þeirra finnist sjórekið lík.
Blaðið segir að 8,300 flóttamönnum hafi verið bjargað um
páskahelgina og þeir hafi greint frá því að um eitt hundrað
einstaklingar með þeim í för hafi dáið á leiðinni. Margir bátanna séu
yfirfullir og fólk drukkni, kafni eða svelti til bana á leiðinni yfir
hafið.
Batnandi veður og orðrómur um að
líbanska landhelgisgæslan grípi senn til aðgerða gegn smyglurum í Líbíu
leiða til þess að smyglarar hvetja nú sífellt fleiri til að leggja í
hættuförina yfir hafið, segir í frétt Independent.
Blaðið segir líka frá því að nokkur
borgarasamtök hafi vegna þess hræðilega ástands sem skapast hefur sent
björgunarskip með heilbrigðisstarfsfólk og vistir á vettvang til
viðbótar við aðgerðir Evrópusambandsins. Borgarasamtökunum hafi verið
vel tekið af evrópskum stjórnvöldum en þau sæti gagnrýni frá öfga
hægrisinnum og öðrum hópum sem ásaki þau um leynilegt samstarf við
smyglara.
Fulltrúi Lækna án landamæra sem eru með tvö skip á Miðjarðarhafi segir ásakanirnar byggðar á sandi. "Þetta eru fáránlegar ásakanir settar fram til að draga athyglina frá raunverulega vandanum," hefur blaðið eftir Stefano Argenziano hjá Læknum án landamæra.