Vonin enn til staðar
Andreas Papp, yfirmaður neyðaraðstoðar SOS
Barnaþorpanna á heimsvísu, hélt fyrirlestur þann 19. apríl síðastliðinn
í Háskóla Íslands sem bar yfirheitið "Is there a hope for a traumatized generation? The war in Syria and how it affects children."
Andreas hefur yfir tveggja áratuga
starfsreynslu á sviði neyðaraðstoðar, þar á meðal starfaði hann í tíu ár
hjá Læknum án landamæra. Í marsmánuði var hann staddur í Sýrlandi til
að skoða aðstæður og fylgjast með neyðaraðgerðum SOS í Aleppo og
Damaskus.
Á fyrirlestrinum kom fram að Andreas hafi
aldrei séð aðra eins eyðileggingu og í Aleppo. Ekkert rennandi vatn er í
austurhluta borgarinnar en SOS Barnaþorpin hafa komið upp vatnstönkum
fyrir almenning. Þá eru 14 skólar gjöreyðilagðir í austurhluta
borgarinnar sem Andreas segir mjög mikilvægt að endurreisa svo börnin
komist aftur í skóla.
Hann sagði vonina þó vera til staðar. Það
þyrfti þó að hjálpa sýrlenskum börnum, þá sér í lagi með áfallaaðstoð og
menntun.