Um 25 milljónir barna utan skóla á átakasvæðum í heiminum
Stríðsátök í heiminum hafa leitt til þess að 25 milljónir barna á aldrinum 6 til 15 ára, eða um 22% barna á þeimi aldri, fá enga formlega menntun. Í frétt frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) kemur fram að börn á 22 stríðshrjáðum svæðum í heiminum eru utan skóla, flest þeirra stúlkubörn.
"Menntun er aldrei mikilvægari en einmitt á tímum stríðsátaka," segir
Josephine Bourne yfirmaður
menntamála hjá UNICEF í fréttinni. Hún bendir á að skólar séu
griðarstaður barna, verndi þau gegn vígasveitum sem vinni þeim mein og
því miður fjölgi börnum ört á átakasvæðum sem sækja ekki lengur skóla.
Samkvæmt gögnum UNICEF eru flest
grunnskólabörn utan skóla í Suður-Súdan, eða um 72% allra barna.
Helmingur barna í Tjad er utan skóla og 46% barna í Afganistan. Í öllum
löndunum þremur eru hlutfall stúlkna utan skóla hærra en stráka.