Styrkja þarf Alþjóðabankann fjárhagslega til að hann geti gegnt hlutverki sínu
Styrkja þarf Alþjóðabankann
fjárhagslega til að hann geti gegnt hlutverki sínu, náð settum markmiðum
og tekist á við þær áskoranir sem blasa við. Þetta var meðal þess sem
fram kom á vorfundum Alþjóðabankans sem haldnir voru í síðustu viku og
lauk með fundi þróunarnefndar bankans og Alþjóðagjaldeyris-sjóðsins á laugardag.
Þróunarnefndin mótar meginstefnu bankans og er
skipuð ráðherrum 25 landa, en hún fundar tvisvar sinnum á ári.
Ráðherrar í kjördæmi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna skiptast á að
sitja í nefndinni og
Ulla Tørnæs þróunarmálaráðherra Danmerkur, situr í nefndinni þetta árið.
Utanríkisráðherra Íslands mun sitja í nefndinni fyrir hönd kjördæmisins árið 2019.
Á fundi
þróunarnefndarinnar var farið yfir þrjú megin málefni: framvindu hvað
varðar framtíðarsýn bankans (Forward Look), endurútreikning á
hlutafjáreign aðildarríkja (Shareholding Review) og styrkingu bankans (A
Stronger World Bank Group for All).
Forseti bankans lýsti yfir ánægju sinni með
18. endurfjármögnun Alþjóðaframfarastofnunarinnar (IDA18) sem er
nýlokið, en IDA er sú stofnun bankans sem veitir styrki og lán á
hagkvæmum kjörum til fátækustu ríkjanna. Sagði hann niðurstöður
samningaviðræðnanna
endurspegla sterkan stuðning við fjölþjóðlegt samstarf í þágu sjálfbærrar
þróunar. Hann undirstrikaði jafnframt nauðsyn fjárhagslegrar styrkingar
bankans (IBRD og IFC) og vísaði þá bæði til mögulegrar
hlutafjáraukningar auk innri aðgerða til að losa um fjármagn, s.s. að
draga úr rekstrarkostnaði og auka skilvirkni. Að lokum minnti hann á
mikilvægi yfirstandandi vinnu við endurútreikning á hlutafjáreign ríkja.
Þótt ljóst sé að hlutur sumra ríkja muni dragast saman séu allir
sammála um tilganginn, eða að efla rödd þróunarríkja innan bankans.
Í ræðu sinni ítrekaði fulltrúi kjördæmisins,
Ulla Tørnæs, m.a. mikilvægi þess að takast á við loftslagsvandann og
tryggja jafnrétti kynjanna, m.a. með stuðningi við kyn- og
frjósemisheilbrigði og -réttindi, enda hvort tveggja grundvöllur þess að
ná megi Heimsmarkmiðum SÞ um sjálfbæra þróun.
Meðan á vorfundum Alþjóðabankans stóð áttu
fulltrúar Íslands margvíslega tvíhliða fundi og tóku þátt í fjölbreyttum
viðburðum. Má þar nefna ráðherrafundum um málefni ungs fólks, mikilvægi
félagslegra stuðningsneta, flóttamannavandann og um málefni fátækustu
ríkjanna auk funda tengdum starfsemi Alþjóðaframfarastofnunarinnar og
aukinni aðkomu einkageirans að uppbyggingu í þróunarríkjum.