Ýmsar nýjungar og áherslubreytingar
Vinna við nýtt verkefnaskjal
vegna samstarfs við Mangochihérað í Malaví er nú á lokastigi. Í
megindráttum er samstarfið á sömu sviðum og á sama grunni og á
tímabilinu 2012-2016 (sem var framlengt til júníloka 2017). Þrátt fyrir
það, er þar að finna ýmsar nýjungar og nýjar áherslur. Hér á eftir
verður þeim að nokkru lýst, með þeim fyrirvara þó, að vinnunni er ekki
lokið að fullu og ferli samþykkta allra hlutaðeigandi er eftir. Þótt
eitthvað kunni því að breytast lítillega frá því sem nú er áformað, eru
þau drög sem liggja fyrir að mestu byggð á óskum og hugmyndum heimamanna
í Mangochi og náið samráð hefur verið haft við héraðsstjórnina við
mótun verkefnisins á öllum stigum.
Ein mikilvæg breyting, sem þó
lætur ekki mikið yfir sér, er að nú eru allar verkefnastoðirnar í einu
skjali. Litið er á þær allar sem hluta af Grunnþjónustuverkefninu í
Mangochi (Mangochi Basic Services Programme).
Mikil aukning í vatns- og hreinlætishluta
Í vatns- og
hreinlætisverkefninu var einungis unnið í einu Traditional Authority (TA
Chimwala) á tímabilinu 2012-2016. Þar var áætlað að gera 350
vatnsveitur virkar, með nýjum borholum, haldgröfnum lokuðum brunnum og
endurgerðum borholum. Niðurstaðan varð nær 380 (auk 120 í
framlengingunni til árs). Í drögum að verkefnaskjali er miðað við 680
vatnsveitur, þar af 500 nýjar. Það er talið raunhæft, m.a. vegna þeirrar
reynslu sem hefur byggst upp hjá vatnsskrifstofunni undanfarin ár.
Framgangur hreinlætishluta
verkefnisins var ekki jafn góður og vatnshlutans. Aðgerðir héldu ekki í
við vatnshlutann og það sem gert var, var ekki nægjanlega varanlegt í
öllum tilvikum. Í framlengingunni var ákveðið að gera átak í að ljúka að
mestu hreinlætisþættinum í TA Chimwala og jafnframt að flytja forræði
hans frá vatnsskrifstofunni yfir til heilbrigðisskrifstofunnar, en það
er sama fyrirkomulag og á landsvísu.
Næstu skref í lýðheilsu
Á tímabilinu 2012-2016 var mikið fjárfest í nýbyggingum. Byggð var stór fæðingardeild við héraðssjúkrahúsið, fjórar fæðingardeildir í dreifbýli, ellefu biðskýli fyrir verðandi mæður, tíu heilsuskýli í dreifbýli og tíu starfsmannahús við heilbrigðisstofnanir. Í framlengingunni var bætt um betur, byggðar fjórar fæðingardeildir til viðbótar í dreifbýli og fimm biðskýli. Á komandi verktímabili verður áfram lögð áhersla á að efla þjónustu við mæður og börn og reynt að tryggja að í þeim heilbrigðisstofnunum sem hafa verið byggðar, verði veitt góð þjónusta. Nú er unnið að því að ráða fagfólk til starfa við fæðingardeildir og heilsuskýli sem reist hafa verið og byggð verða starfsmannahús víða í dreifbýli til að hýsa væntanlegt starfsfólk. Stærsta einstaka framkvæmdin verður að bæta verulega aðstöðu í heilsugæslustöðinni í Makanjira, m.a. með því að reisa skurðstofu. Makanjira er um 100 km frá Mangochibæ við austanvert Malavívatn. Þetta hefði í för með sér að ekki þyrfti að flytja eins marga til héraðssjúkrahússins í Mangochibæ og í dag, en leiðin er stundum ógreiðfær og erfið, einkum á regntímanum. Talið er að í dag þurfi sjúkrabílar að fara þessa leið með sjúklinga að jafnaði tvisvar á dag, en með þessu mætti fækka þeim ferðum verulega.
Gangi allt þetta eftir, ættum við að sjá
stórfellda fækkun dauðsfalla mæðra og ungra barna í héraðinu á næstu
árum. Þessar áherslur eru eðlilegt framhald af þeirri gríðarlegu
uppbyggingu í innviðum sem samstarfið í lýðheilsu hefur gengið út á
undanfarin ár.
Bryddað verður upp á ýmsum
nýjungum, til að styðja enn frekar við markmiðin. Þannig er fyrirhugað
að gera tilraun með að útbýta næringarviðbót fyrir 6-18 mánaða börn í
öllum heilsugæslustöðvum og styrkja fræðslu um mikilvægi þess að draga
úr fólksfjölgun og kynna aðferðir í því sambandi. Að lokum verður lögð
aukin áhersla á að efla vitund og þekkingu fólks úti í dreifbýlinu á
grundvallaratriðum í lýðheilsu.
Nýjar áherslur í menntahlutanum
Stórvægilegustu nýjungarnar og
breytingarnar eru fyrirhugaðar í menntahluta verkefnisins, þótt þær
byggi vissulega á því sem áður hefur verið gert. Áfram verður unnið í
sömu 12 skólum og á árunum 2012-2016. Á því tímabili voru byggðar 52
kennslustofur, 36 kennarahús og 48 kamrar. Því til viðbótar var ýmiss
konar þjálfun fyrir kennara og skólastjórnendur, kaup á kennslugögnum og
skólaborðum og fleira sem er nauðsynlegt til að skólastarf geti gengið
eðlilega fyrir sig.
Þegar verkefnið fór af stað,
voru um 20.000 nemendur í þessum 12 skólum. Núna - tæpum fimm árum síðar
- eru þeir um 25.000. Það er líklega ekki nema að litlu leyti vegna
þess að skólunum haldist betur á nemendum sínum vegna þessara inngripa,
heldur fyrst og fremst vegna risastórra nýrra árganga. Á sama tíma og
nemendum fjölgaði um fjórðung, fjölgaði kennslustofum um 50%. Það þýðir,
að væntanlega njóta fleiri börn þess að kennsla fer fram innandyra en
áður, þótt óneitanlega gangi hægt að koma þeim öllum undir þak.
Áhersla á yngstu börnin
Nú er gengið út frá því, að
höfuðáhersla verði lögð á yngstu börnin, fyrsta og annan bekk. Þannig
verði byggðar fyrir þau skólastofur, tryggt að hvert og eitt fái í
hendur nýja kennslubók í öllum greinum. Reynt verði að tryggja að þau
læri að lesa, skrifa og undirstöðuatriði í reikningi á þessum fyrstu
árum. Það muni síðan skila sér inn í efri bekkina í framhaldinu. Til að
þetta verði hægt, þarf enn að byggja talsverðan fjölda kennslustofa. Í
framlengingunni er verið að reisa 18 stofur og ekki ósennilegt að á
komandi tímabili verði reistar a.m.k. tvöfalt fleiri til viðbótar.
Jafnframt eru í skoðun möguleikar á að fjölga aðstoðarfólki í yngstu
bekkjunum og skipta þeim og taka þannig upp tvísetningu eins og þá sem
lögð var af á Íslandi fyrir nokkrum árum. Með því fengist betri nýting
húsnæðis og starfsfólks. Þetta er þó ekki alveg eins einfalt og gæti
virst, þar sem ná þyrfti sátt í samfélögunum um fyrirkomulagið, ekki
síst við trúarleiðtoga. Ein nýjung til viðbótar, er að gera tilraun með
forskóladeildir við tvo skóla, til að undirbúa börnin og til að bæta
þjónustu í samfélögunum.
Aftur í skóla
Undanfarið hefur verið mikil
umræða um ungmennahjónabönd í Malaví. Svo virðist sem það sé að verða
vakning um mikilvægi þess að koma í veg fyrir þau, en hjónabönd ungmenna
hafa verið mjög algeng og dragbítur á þróun og möguleika margra
ungmenna til menntunar. Fyrir því liggja margvíslegar menningarlegar og
efnahagslegar ástæður. Í komandi verkefni er gert ráð fyrir því að
styðja við viðleitni til að koma í veg fyrir barnahjónabönd. Það verður
m.a. gert í gegnum skólana 12 sem unnið er með, en einnig með stuðningi
við héraðsyfirvöld, við að upplýsa höfðingja, mæðrahópa og aðra sem geta
haft áhrif til góðs. Meðal annars er horft til fyrirmyndar Chief
Kachindamoto, sem áður hefur verið sagt frá í Heimsljósi.
Fleira í deiglunni
Meðal annarra nýmæla í samstarfinu eru aðgerðir til valdeflingar kvenna og ungmenna. Undirbúningur þeirra er skemmra á veg kominn en ofangreint og fer væntanlega fyrst í stað í gang sem greiningarvinna. Gerð verður nánari grein fyrir þessum áhersluþáttum síðar.