Kvennanefnd SÞ ræðir efnahagslega valdeflingu
Starfskonur landsnefndar UN Women á Íslandi
sækja þessa dagana 61. fund Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW61) í
New York þar sem sjónum verður beint að efnahagslegri valdeflingu
kvenna.
"Fundurinn er einn af fjölmennustu og viðamestu fundum heims þar sem þjóðarleiðtogar, frjáls félagasamtök, aðilar einkageirans, stofnanir SÞ og meðlimir grasrótarhreyfinga hvaðanæva úr heiminum koma saman, deila reynslu sinni og bera saman bækur sínar," segir í frétt á vef UN Women. Í ár verður rætt um stöðu og réttindi kvenna á vinnumörkuðum og hvaða leiðir séu greiðfærastar við að tryggja konum óheft aðgengi að atvinnu, tekjuöflun og efnahagslegri valdeflingu.
"Efnahagsleg valdefling kvenna gerir ekki eingöngu konum
og stúlkum kleift að blómstra heldur samfélaginu í heild sinni. Við
lifum á breyttum tímum atvinnulífs og vinnumarkaða, á tímum nýsköpunar,
alþjóðavæðingar og fólksflutninga. En á sama tíma stendur heimsbyggðin
frammi fyrir loftslagsbreytingum, gríðarlegum fólksflótta og neyð, auknu
vinnumansali og efnahagslegu kynjamisrétti. Það er allra hagur að skapa
samfélög þar sem fullkomið kynjajafnrétti ríkir. Þar sem konur eru
efnahagslega valdefldar og veitt jöfn tækifæri á við karlmenn er
samfélagið heilbrigt og sjálfbært. Með því að útrýma kynbundnum launamun
og dreifa þeirri ábyrgð sem felst í að sinna ólaunuðum
umönnunarstörfum, sem yfirleitt falla í skaut kvenna og stúlkna, og
fjárfesta í þeim mannauði sem konur búa yfir strax í dag - er talið að
verg þjóðarframleiðsla heimsins muni aukast um 12 trilljónir
bandaríkjadollara fyrir árið 2025," segir í fréttinni.
Hægt verður að fylgjast með framgangi mála á
fundum á Facebook og Twitter-síðu UN Women. Myllumerkið fyrir fundinn
er #CSW61
- As the world of work transforms, UN's largest inter-governmental meeting to focus on its impact on women and girls/ UN Women
- Opinion: It's time for donors to embrace women's equality. Here's how./ Devex
- Charlotte Petri Gornitzka on female leadership in development/ Devex
- Aid in Support of Gender Equality and Women's Empowerment - DONOR CHARTS/ OECD
- Lover kompromissløs kamp for jenters og kvinners rettigheter/ Bistandsaktuelt
- Planet 50:50 is not quite light years away - but there's still a mountain to climb, eftir Kaye Richards/ TheConversation
- Despite Progress, Women Still Represent a Small Portion of the World's Leaders/ Fortune
- "Kvinnor måste få välja när de vill ha barn"/ SVD
- A day without women? This is what it would look like/ WEF
- Fler kvinnor måste få bestämma över sin ekonomi/ SIDA