Ellefu nemendur skólans hafa lokið doktorsnámi á Íslandi
Í fyrradag útskrifaðist 19. árgangur Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna eftir sex mánaða nám á Íslandi. Með þeim sem útskrifuðust á mánudag hafa alls 347 sérfræðingar frá um 50 löndum lokið sex mánaða náminu á Íslandi og og rúmlega 1200 manns tekið þátt í styttri námskeiðum í samstarfslöndunum. Þá hafa 18 nemar lokið framhaldsnámi við Háskóla Íslands og frá Háskólanum á Akureyri, þar af hafa ellefu lokið doktorsnámi.
Markmið skólans er að aðstoða þróunarríki
við að móta og hrinda í framkvæmd stefnu sinni um þróun á sjálfbærri
nýtingu auðlinda sjávar og vatna. Að þessu sinni útskrifuðust 22 nemar
frá 16 löndum. Þeir koma frá tíu Afríkulöndum (14), þremur eyríkjum
Karíbahafs (3) og þremur löndum í Asíu (5). Tíu konur eru meðal þeirra
sem útskrifuðust, en að meðaltali er þátttaka kvenna í sex mánaða náminu
á Íslandi tæplega 40%
22 nemar frá 16 löndum
Sex mánaða nám á Íslandi fyrir starfandi sérfræðinga í samstarfslöndum er helsta verkefni skólans, en markmið skólans er að aðstoða samstarfslönd við að móta og hrinda í framkvæmd stefnu sinni um þróun á sjálfbærri nýtingu auðlinda sjávar og vatna.
Sjávarútvegsskólinn býður upp á sex sérsvið og voru þrjú þeirra kennd í ár; gæðastjórnun í vinnslu og meðhöndlun fisks, veiðafærafræði og veiðitækni, og veiðistjórnun og þróun sjávarútvegs. Helmingur námsins er einstaklings verkefni sem unnið er í nánu samstarfi með íslenskum sérfræðingum. Rannsóknarverkefnin spanna vítt svið, en öll tengjast þau með beinum hætti þeim viðfangsefnum sem nemarnir sinna í störfum sínum heima fyrir. Mörg lokaverkefnanna nýtast einnig beint við stefnumótun sjávarútvegs í heimalöndum þeirra.Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu
þjóðanna hefur vaxið og aukið starfsemi sína í samstarfslöndum sínum á
undanförnum áratug. Styttri námskeið hafa verið þróuð og haldin í
samstarfi við þarlenda sérfræðinga, fyrrum nema og samstarfsstofnanir og
Sjávarútvegsskólinn styður einnig við þátttöku fyrrum nema í
alþjóðlegum ráðstefnum á sviði sjávarútvegs. Því til viðbótar styrkir
Sjávarútvegsskólinn fyrrum nema skólans til framhaldsnáms hér á landi í
greinum tengdum sjávarútvegi. Jafnframt því að styrkja sérfræðiþekkingu
og færni í samstarfslöndum og sjávarútvegsstofnunum, þá leggur skólinn
ríka áherslu á að afla og þróa þekkingu sem nýtist við stefnumótun í
sjávarútvegsmálum.
Skólinn hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands
Sjávarútvegsskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna er fjármagnaður af utanríkisráðuneytinu sem hluti af þróunarsamvinnu Íslendinga. Hann er rekinn af Hafrannsóknastofnun, í nánu samstarfi við Matís, Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann á Hólum, en auk þeirra koma fjöldi annarra stofnana og fyrirtækja að starfseminni með einum eða öðrum hætti. Velgengni Sjávarútvegsskólans í gegnum árin er ekki síst vegna góðrar samvinnu við fjölda stofnana á Íslandi og fyrirtækja í sjávarútvegi, og hefur sú samvinna í seinni tíð opnað í auknu mæli tækifæri íslenskra fyrirtækja og stofnana í samstarfslöndunum.