Landsbankinn verðlaunar framúrskarandi fyrirtæki með sönnum gjöfum UNICEF
"Við erum innilega þakklát fyrir þetta
ótrúlega rausnarlega framlag," segir Bergsteinn Jónsson,
framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi í frétt á vef samtakanna.
"Það er gleðilegt til þess að vita að börn
vítt og breitt um heiminn fái nú hjálpargögn sem gefin voru í nafni
fjölmargra fyrirtækja á Íslandi. Við þökkum Landsbankanum hjartanlega
fyrir og óskum fyrirtækjunum öllum sem fengu viðurkenninguna til
hamingju með árangurinn."
Sannar gjafir UNICEF eru lífsnauðsynleg
hjálpargögn fyrir bágstödd börn og er ætlað að bæta líf barna um allan
heim.
Að sögn Völu Karenar Viðarsdóttur,
fjáröflunarfulltrúa hjá UNICEF á Íslandi, voru hjálpargögn af öllum
stærðum og gerðum í sendingunni frá Íslandi. "
Við höfum aldrei fengið jafnstóra pöntun af sönnum gjöfum og erum hæstánægð með þetta," segir Vala. "
Gjöfunum verður
nú dreift til barna og fjölskyldna þeirra með milligöngu birgðastöðvar
UNICEF. Framtakið hjá Landsbankanum er frábært og mun sannarlega koma í
afar góðar þarfir."
Nánar