Fokk ofbeldi húfan 2017
UN Women á Íslandi kynnir með stolti nýja Fokk ofbeldi
húfu. Húfunni er ætlað að vekja fólk til vitundar um stöðuga ofbeldið
sem konur og stelpur þurfa að þola á almennings-svæðum í borgum
heimsins.
Ofbeldi gegn konum, stúlkum og börnum í
almenningsrýmum er vandamál um allan heim. Konur sem búa á
þéttbýlissvæðum eru tvöfalt líklegri til að verða fyrir ofbeldi,
sérstaklega í fátækustu löndum heims samkvæmt rannsóknum á vegum
Sameinuðu þjóðanna. Meira að segja í öruggustu borgum heims eins og
Reykjavík verða konur fyrir ofbeldi af ýmsu tagi fyrir það eitt að vera
konur. Víða um heim er slíkt ofbeldi daglegt brauð sem hamlar konum að
lifa eðlilegu lífi eins og að ferðast til og frá vinnu, ganga í skóla
eða eiga sér félagslíf.
Með verkefninu Öruggar borgir (Safe Cities
Global Initiative) vinnur UN Women að því að gera borgir heimsins
öruggari fyrir konur og stúlkur með sértækum lausnum út frá
svæðisbundnum veruleika.
Það er ósk UN Women á Íslandi að landsmenn
taki þátt í að auka öryggi kvenna og stúlkna í borgum um allan heim með
því að kaupa Fokk ofbeldi húfuna. Ágóðinn rennur til verkefnis UN Women
Öruggar borgir en vert er að taka fram að Vodafone styrkti framleiðsluna
svo allur ágóði rennur til verkefnisins.
Fokk ofbeldi húfan er ætluð fullorðnum.
Orðalagið er vísvitandi ögrandi og ætlað að hreyfa við fólki. Ef
orðalagið fer fyrir brjóstið á fólki þá er mikilvægt að muna að ein af
hverjum þremur konum verða fyrir ofbeldi á lífsleiðinni.
Fokk ofbeldi húfan fæst í verslun Vodafone í Kringlunni dagana 10. - 24. febrúar og í
vefverslun okkar.
Húfan kostar 4.500 krónur og er aðeins til í takmörkuðu upplagi.
UN Women á Íslandi hvetur alla til að næla sér í húfu og gefa um leið ofbeldi fingurinn.