Drög að stefnu UNICEF 2018-2021 kynnt á stjórnarfundi samtakanna í New York
Stjórnarfundur UNICEF var haldinn dagana
7. og 8. febrúar í aðalstöðvum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í New York.
Framkvæmdastjórn UNICEF er samansett af 36 aðildarríkjum, kjörin til
þriggja ára í senn af efnhags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna
(ECOSOC).
Úthlutun sæta í stjórninni er
svæðisbundin, en lönd í Afríku fá til dæmis 8 sæti á meðan lönd í
Vestur-Evrópu og líkt þenkjandi ríkja (WEOG) fá 12 sæti. Ísland átti
síðast sæti í framkvæmdastjórn UNICEF 2010, en fylgist með störfum og
tekur þátt í stjórninni sem áheyrnarfulltrúi.
Á fundinum voru m.a. kynnt ný drög að
stefnu UNICEF 2018-2021, mat á friðartengdu menntaverkefni (PBEA), staða
HIV/Alnæmis verkefnis UNICEF, niðurstöður skýrslu endurskoðenda og
staða innleiðingar stofnunarinnar á árangurstengdri fjárhagsáætlun og
stjórnun. Flestir dagskrárliðir voru til upplýsingar en Haítí og
Botswana kynntu nýja landaáætlun, sem var samþykkt án athugasemda.
Þá tóku til máls fulltrúar 25 landa og
gerðu grein fyrir afstöðu landa sinna til nokkurra málaflokka, s.s.
samþættingu og samvirkni stofnana SÞ, aukna samþættingu þróunarsamvinnu
og mannúðaraðstoðar og ákvörðun framlaga til landa. Fulltrúar nokkurra
millitekjuríkja tóku til máls og töluðu fyrir því að nota í auknum mæli
margvíða fátæktarvísitölu (MPI) í formúlunni sem ákvarðar framlög til
landa.
Ísland tók undir ræðu Noregs um mat á PBEA
verkefninu og árangurstengdri stjórnun og fjárhagsáætlun sem og ræðu
Sviss um nýja stefnumörkun UNICEF.
Hildigunnur Engilbertsdóttir, starfsmaður
þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins sótti fundinn, ásamt
því að sækja fundi með Fastanefnd Íslands, UNDP, UNFPA og UN Women. Hún
sótti einnig heils dags vinnufund þar sem aðildarríki og
áheyrnarfulltrúar fengu tækifæri til þess að hafa áhrif á nýja stefnu
UNICEF.
Fyrir áhugasama er hægt að horfa á stjórnarfundinn í heild sinni hér