UNICEF segir milljónir barna í lífshættu vegna vannæringar
Milljónir barna á átakasvæðum - eða á
öðrum svæðum þar sem kreppuástand ríkir - eru í alvarlegri hættu að
deyja af vannæringu fái þau ekki lífsnauðsynlega læknisaðstoð, segir í
tilkynningu
frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). Samtökin birtu á dögunum
ákall um 3,3 milljarða dala fjármögnun - sem svarar til 380 milljarða
íslenskra króna - vegna lífsnauðsynlegrar aðstoðar við 81 milljón manna í
41 þjóðríki. Af þessum fjölda er meirihlutinn börn en um er að ræða
neyðarsvæði ýmist vegna stríðsátaka eða náttúruhamfara.
Af þessum fjármunum er ætlunin að 160
milljarðar ísl. króna fari til 17 milljóna flóttamanna frá Sýrlandi sem
hafast við í fimm nágrannaríkjum: Tyrklandi, Jórdaníu, Líbanon, Írak og
Egyptalandi.
Í ákalli beina fulltrúar UNICEF athyglinni
sérstaklega að "þögulli ógn" vannæringar. Að mati samtakanna eru 7,5
milljónir barna í bráðahættu vegna vannæringar í 48 löndum þar sem neyð
ríkir. Ástandið er verst í Nígeríu, Jemen, Suður-Súdan og Sómalíu.
Í tilkynningu UNICEF segir að hartnær fjórða hvert barn í heiminum búi við átök, þ.e. í löndum eins og Sýrlandi, Jemen, Írak, Suður-Súdan og Nígeríu. Í öllum þessum löndum séu börn í stöðugri hættu á að árásir séu gerðar á heimili þeirra, skóla eða samfélög.
UN: Millions of Children Caught in Conflict Risk Death From Malnutrition/ VOA