Heimsmarkmiðin og umbætur á kerfi Sameinuðu þjóðanna rædd á fundi NORDIC+
Fundur ráðuneytisstjóra Nordic Plus ríkjanna fór
fram í London dagana 6. og 7. febrúar. Nordic Plus hópurinn
samanstendur af átta líkt þenkjandi ríkjum á sviði þróunarsamvinnu,
Norðurlöndunum, ásamt Bretlandi, Írlandi og Hollandi.
María Erla Marelsdóttir, skrifstofustjóri á
þróunarsamvinnuskrifsstofu var staðgengill ráðuneytisstjóra í London og
tók þátt í fundinum fyrir Íslands hönd. Umræður á fundinum fóru um víðan
völl þar sem snert var á hinum ýmsu málefnum líðandi stundar á sviði
þróunarsamvinnu og farið yfir helstu áskoranir og tækifæri sem
alþjóðasamfélagið stendur frammi fyrir.
Fulltrúar ríkjanna sögðu frá helstu áherslum
sinna ríkja á sviði þróunarsamvinnu og deildu reynslu hvert með öðru.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna voru áberandi í allri umræðu og umbætur á
kerfi Sameinuðu þjóðanna skipuðu stóran sess í dagsskrá fundarins. Þá
voru umræður um það helsta á sviði jafnréttis- og lofslagsmála og rætt
var um hlutverk og mikilvægi einkageirans í þróunarsamvinnu.