Fyrirlestur um Heimsmarkmiðin og kynjajafnrétti
Keiko Nowacka heldur annan fyrirlestur vormisseris í fyrirlestraröð RIKK og Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna fimmtudaginn 9. febrúar, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands, kl. 12-13.
Fyrirlestur hennar nefnist: Að ná heimsmarkmiðum SÞ um kynjajafnrétti: Starf þróunarsamvinnunefndar Efnahags og framfarastofnunarinnar (OECD) að félagslegum viðmiðum, kynjatölfræði og umbreytandi stefnumótun.Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra
þróun sem öll aðildarríki eiga að vinna að til ársins 2030 gefa góð
fyrirheit um að hægt sé að ná fram jafnrétti kynjanna.
Heimsmarkmiðin eru sautján, með 169
undirmarkmiðum og gilda fyrir öll 193 aðildarríki SÞ Þau marka mikil
tímamót þar sem ríki heims hafa ekki fyrr sett sér svo víðtæk,
sameiginleg markmið. Fimmta
heimsmarkmiðið snýr að því að tryggja jafnrétti kynjanna og valdeflingu
allra kvenna og stúlkna, og hafa mælikvarðar verið settir sem taka
tillit til þeirra kerfisbundnu hindrana í lífi stúlkna og kvenna sem
varða jafnrétti, tækifæri og velferð þeirra. Mikilvægar umbætur má sjá í
heimsmarkmiðunum frá þúsaldarmarkmiðunum sem unnið var að fram til 2015
en heimsmarkmiðin fela í sér viðurkenningu á að félagsleg viðmið og
aðstæður séu mikilvægir áhrifavaldar fyrir réttindi og velferð stúlkna
og kvenna.
Undirmarkmið heimsmarkmiðs númer fimm er
varða ólaunuð umönnunarstörf, skaðlega siði og snemmbær hjónabönd eru
dæmi um samþættingu félagslegra viðmiða inn í þróunarrammann. Mælingar
og eftirlit með þeim breytingum sem verða á tímabilinu eru lykilatriði
til að ná slíkum félagslegum viðmiðum.
Keiko Nowacka hefur frá árinu 2013 starfað
fyrir þróunarsamvinnunefnd Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) og
stýrir nú því starfi sem snýr að málefnum kynjajafnréttis, þar á meðal
Social Institutions and Gender Index (SIGI) og
Wikigender
. Áður en hún
hóf störf hjá OECD var hún ábyrg fyrir kynjasamþættingu á menningarsviði
Menningarmála-stofnunar Sameinuðu þjóðanna
(UNESCO) og
ritstýrði einnig fyrstu skýrslunni um kynjajafnrétti og menningu (Global
Report on Gender Equality and Culture) sem kom út árið 2014. Hún
hefur einnig
starfað hjá frjálsum félagasamtökum í sunnanverðri Afríku sem vinna að
menntun stúlkna. Nowacka lauk doktorsprófi frá Cambridge-háskóla og
er ástralskur ríkisborgari.
Fyrirlesturinn, sem haldinn er á ensku, er öllum opinn.
Hádegisfyrirlestraröð RIKK og Jafnréttisskólans á vormisseri 2017 er haldin
í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands.