Alþjóðadagur gegn limlestingum á kynfærum kvenna
Síðastliðinn mánudag var alþjóðlegur
dagur gegn limlestingu á kynfærum stúlkna (FGM - Female Genital
Mutulation). Rúmlega 130 milljónir stúlkna og kvenna eru á lífi í dag
sem hafa orðið fyrir slíkri limlestingu. Þessi útbreidda og hræðilega
aðgerð er algengust í 29 ríkjum Afríku og Miðausturlanda og felur í sér
skýlaust mannréttindabrot á stúlkum. Þær eru flestar skornar fyrir fimm
ára aldur.
Að óbreyttu bætast 86 milljónir stúlkna við
þennan hóp fyrir árið 2030 samkvæmt útreikningum Sameinuðu þjóðanna.
"Limlestingar á kynfærum kvenna og stúlkna ræna þær virðingu, valda
óþarfa sársauka og þjáningu með óbætanlegum og jafnvel banvænum
afleiðingum fyrir lífstíð," sagði Antóníó Guterres í yfirlýsingu í
tilefni dagsins.
Samkvæmt einu af undirmarkmiðum fimmta
Heimsmarkmiðsins á að afnema fyrir árið 2030 alla skaðlega siði, eins og
barnahjónabönd, snemmbúin og þvinguð hjónabönd og sköddun kynfæra
kvenna.
Cut in secret: the medicalization of FGM in Egypt/ CNN