Malaví í öðru sæti á lista Afríkuþjóða á eftir Suður-Afríku
Verulegur munur er á viðleitni
stjórnvalda í Afríkuríkjum þegar horft er til skuldbindinga sem
þjóðirnar hafa gert til að binda enda á hungur og vannæringu. Þetta er
niðurstaða nýrrar rannsóknar sem birt var á dögunum. Athygli vekur að
Malaví er í öðru sæti á þessum lista. Suður-Afríka er sjónarmun ofar en
Madagaskar hreppir þriðja sæti listans.
Listanum er ætlað að vekja þjóðarleiðtoga í
álfunni til vitundar um stöðu þessa málaflokks en eins og alkunna er búa
milljónir Afríkubúa við alvarlega vannæringu og jafnvel sult. Samkvæmt
frétt á vefnum HANCI-Index -þar sem er að finna listann í heild og
aðferðarfræðina að baki rannsókninni - kemur fram að 220 milljónir
Afríkubúa líða fyrir varanlega vannæringu og 58 milljónir barna búa við
vaxtarskerðingu.
Í umsögn um bæði Suður-Afríku og Malaví kemur
fram að báðar þjóðirnar hafa stjórnarskrárvarinn rétt þegnanna til að
njóta matar auk þess sem báðar þjóðirnar hafa stórbætt
heilbrigðisþjónustu. Í Suður-Afríku er einnig almannatryggingakerfi.
Hins vegar er aðgengi íbúa beggja þjóðanna að viðunandi salernisaðstöðu
ófullnægjandi líkt og víða annars staðar en þriðjung íbúa þjóðanna
sunnan Sahara skortir sómasamleg náðhús. Vakin er athygli á því að
skuldbinding stjórnvalda í Malaví sé mikilvæg nú á tímum matvælaskorts
af völdum gífurlega þurrka.
How committed are African countries to tackling hunger and improving undernutrition?/ HanciIndex