Kvenbændur í Austur-Kongó takast á við loftslagsbreytingar
UN Women hefur sett á laggirnar verkefni í Austur-Kongó (DRC) sem er fyrsta sinnar tegundar. Markmiðið er að takast á við breyttan landbúnað vegna loftslagsbreytinga og um leið auka jafnrétti kynjanna með því að styðja við og valdefla kvenbændur í Austur-Kongó, fyrst og fremst með fræðslu- og leiðtogahæfnisnámskeiðum, að því er fram kemur á vef UN Women á Íslandi.
Einnig er markmiðið að þrýsta á lagaumbætur
sem tryggja konum aðgang að ræktunarlandi, nýjustu tækni og
upplýsingum. "Þannig geta þær orðið sér út um nýjustu ræktunaraðferðir
og tækni, veðurspá og aðgang að lánsfé. Verkefnið verður starfrækt í sex
héruðum landsins og hefur bein áhrif á líf 600 þúsund kvenna á næstu
fimm árum. Beint verður sjónum að kvenbændum sem koma að ræktun fimm
algengustu ræktunartegunda í Kongó; maís, cassava, baunir, hnetur og
hrísgrjón," segir í fréttinni.
Awa Ndiaye Seck starfar fyrir UN Women í
Austur-Kongó, hún segir konur verða verr fyrir barði loftslagsbreytinga
en karlmenn, bæta þurfi ræktunaraðferðir, starfsumhverfi þeirra og
síðast en ekki síst veita þeim sömu tækifæri til atvinnu og sjálfbærni.
Efnahagur Austur-Kongó byggir fyrst og fremst á landbúnaði og skógrækt.
Loftslagsbreytingar hafa leitt til hærra hitastigs í heiminum, aukinna flóða og þurrka sem hafa gríðarleg áhrif á uppskeru og fæðuöflun þar í landi sem og víðar, segir í frétt UN Women.