Aðgerðaáætlun SÞ fyrir Sýrland og nágrannaríkin
Finnsk stjórnvöld og Sameinuðu
þjóðirnar boðuðu á dögunum til fundar í Helsinki þar sem aðgerðaáætlun
um mannúðaraðstoð í nágrannaríkjum Sýrlands var kynnt, eins og fram í
síðasta Heimsljósi. Fulltrúar nágrannaríkjanna og framlagsríkja - þar á
meðal Íslands - og yfirmenn helstu undirstofnana SÞ sem vinna að
mannúðarmálum sóttu fundinn.
Sameinuðu þjóðirnar gera tvær aðskildar
aðgerðaáætlanir um mannúðaraðstoð fyrir Sýrland og nágrannaríki þess.
Áætlunin fyrir Sýrland nefnist á ensku Syria Humanitarian Response Plan
(HRP) og áætlunin um aðstoð vegna flóttamannavandans í nágrannaríkjum
Sýrlands nefnist á ensku Regional Refugee and Resilience Plan (3RP).
Áætlunin fyrir Sýrland var ekki opinberlega kynnt í Helsinki, þar sem
beðið er samþykki stjórnvalda í Sýrlandi.
HRP aðgerðaáætlunin fyrir Sýrland gerir ráð
fyrir að veita 13,5 milljónum Sýrlendinga innan landamæranna aðstoð en
af þeim eru 4,6 milljónir á svæðum sem erfitt er að ná til, þ.m.t.
svæðum undir yfirráðum íslamska ríkisins, og um 700 þúsund íbúar búa á
umkringdum/lokuðum svæðum, m.a. svæðum í borgunum Aleppó, Idlib og
Damaskus. Rúmlega 3,4 milljarða Bandaríkjadala þarf til að fjármagna
alla áætlunina innan Sýrlands, þar af rúmlega 1,3 milljarða vegna
matvælaaðstoðar, sem er langumfangsmesti málaflokkurinn.
86% undir fátæktarmörkum
Til marks um stærð vandans meðal íbúanna innan
Sýrlands áætla Sameinuðu þjóðirnar að 86% landsmanna séu undir
fátæktarmörkum, atvinnuleysi sé 57% og ekki minna en 7 milljónir þurfa á
matvælaaðstoð að halda. Tæpar tvær milljónir skólabarna geta ekki sótt
skóla og tæpar 13 milljónir þurfa aðstoð við heilbrigðisþjónustu eða
lyf. Hjálparstarfi á svæðinu er gert erfiðara um vik þegar aðgengi SÞ og
hjálparsamtaka er síendurtekið hindrað af bæði stjórnvöldum og
uppreisnarmönnum.
Flóttamannastraumurinn til nágrannaríkjanna
hefur haft gríðarlegar afleiðingar á samfélag og efnahag þeirra. Í
Helsinki var kynnt aðgerðaáætlun SÞ (3RP) fyrir nágrannaríkin Líbanon,
Tyrklandi, Jórdaníu, Írak og Egyptalandi. Áætlunin samþættir aðgerðir
240 samstarfsaðila en þar á meðal eru undirstofnanir SÞ, borgarasamtök,
opinberir aðilar og aðrir aðilar sem veita mannúðaraðstoð. Áætlunin
gerir ráð fyrir að ná til 9,3 milljóna manna sem þurfa á aðstoð að halda
í nágrannaríkjunum, 4,8 milljónir eru sýrlenskt flóttafólk og 4,4
milljónir eru íbúar gistiríkjanna sem þurfa aðstoð vegna
flóttamannavandans.
Tæplega 4,7 milljarða Bandaríkjadala þarf til að fjármagna 3RP áætlunina fyrir nágrannaríkin á árinu 2017: 2,6 milljarða til neyðaraðstoðar fyrir flóttafólk og 2,1 milljarða til að bregðast við efnahagslegum afleiðingum af átökunum í Sýrlandi og flóttamannastraumnum. Sex árum eftir að átökin í Sýrlandi hófust, hafa áhrifin einungis aukist og staða bæði flóttafólksins og íbúa gistiríkjanna hefur stöðugt versnað. Aðgerðaáætlunina fyrir nágrannaríkin og frekari upplýsingar um hana má nálgast hér.