Sæmdarsettum að andvirði sex milljóna króna dreift í Írak fyrir íslenskt söfnunarfé
Samtökin UN Women í Írak dreifa um
þessar mundir sæmdarsettum að andvirði sex milljóna króna sem söfnuðust í
neyðarsöfnun UN Women á Íslandi í nóvember á síðasta ári.
"Í ljósi þess skelfilega ástands sem ríkir í
Mosul, Írak efndum við til neyðarsöfnunar fyrir konur á flótta í Írak.
Við hvöttum almenning til að senda sms-ið KONUR í 1900 og þar með veita
konu á flótta frá Mosul sæmdarsett sem inniheldur helstu nauðsynjar líkt
og dömubindi, sápu og vasaljós," segir Inga Dóra Pétursdóttir,
framkvæmdastýra landsnefndar UN Women á Íslandi.
Til að vekja athygli á þeim grimma veruleika
sem konur í Írak búa við, birti landsnefndin myndband sem unnið var af
auglýsingastofunni Döðlur. Óhætt er að segja að myndbandið hafi vakið
ómælda athygli ef tekið er mið af þeim mikla stuðningi almennings við
átakið. Í desember hóf svo landsnefndin sölu á jólagjöf UN Women,
veglegu sæmdarsetti sem er táknræn gjöf og andvirði eins sæmdarsetts Í
Mosul. Sæmdarsettin gera konum kleift að viðhalda sjálfsvirðingunni og
reisn sinni. Almenningur tók virkilega vel í jólagjöfina, sæmdarsettið
sem landsmenn gáfu í nafni vina og vandamanna.
Kvenmiðuð neyðaraðstoð
Konur í Mosul hafa búið við skelfilegan
veruleika undanfarin þrjú ár, síðan vígasveitir íslamska ríkisins lögðu
borgina undir sig. Nú um miðjan október réðust íraskar öryggissveitir
ásamt hersveitum Kúrda inn í Mosul með það að markmiði að ná borginni úr
höndum vígasveita íslamska ríkisins. Hörð átök geysa enn í borginni og á
undanförnum þremur mánuðum hafa um 148 þúsund manns flúið heimili sín í
Mosul og eru nú á vergangi. Fólk hefur flúið meðal annars til Ninewa
svæðisins suðaustur af Mosul þar sem unnið er að uppsetningu búða fyrir
flóttafólk sem fjölgar óðum. UN Women dreifir þar sæmdarsettum til
kvenna og samhæfir aðgerðir á svæðinu og tryggir að veitt sé kvenmiðuð
neyðaraðstoð. Neyðin í Mosul og kring er mikil og virðist eingöngu vera
að aukast.
"Ástandið í Írak er hræðilegt. Aftur á móti er
gleðilegt að segja frá þeim mikla meðbyr og velvilja sem almenningur
hér á landi sýndi í neyðarsöfnuninni," segir Inga Dóra og vill koma á
framfæri þökkum við TM á Íslandi sem styrkti gerð myndbandsins auk þess
sem hún vill koma á fram þakklæti til allra þeirra sem styrktu
herferðina með kaupum á sæmdarsetti.
Neyðin í Írak er mikil og ekkert lát virðist á fólksflóttanum. Enn er hægt að