Ársskýrsla Mannréttindavaktarinnar komin út
https://youtu.be/AEreEj_qrWE Kosning Donald Trumps sem forseta Bandaríkjanna og vaxandi vinsældir popúlista í Evrópu skapa "djúpstæða ógn" við mannréttindi, segir í ársskýrslu bandarísku mannréttindasamtakanna, Human Rights Watch, sem kom út í síðustu viku..Skýrslan er mikili að vöxtum, 687 síður, og tekur til mannréttindamála í níutíu þjóðríkjum.
"Trump og ýmsir stjórnmálamenn í Evrópu leitast við að komast til valda með kynþáttahatri, útlendingahatri, kvenfyrirlitningu og þjóðernishyggu," sagði Ken Roth, framkvæmdastjóri Human Rights Watch þegar hann kynnti skýrsluna. "Aukinn popúlismi er djúpstæð ógn við mannréttindi," bætti hann við.