Sannar gjafir fyrir 27 milljónir
Sannar gjafir Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF) voru vinsælli en aldrei fyrr í desember og fjöldi fólks lagði
neyðarsöfnunum samtakanna fyrir
Sýrland og
Nígeríu lið á aðventunni, að því er segir á vef UNICEF á Íslandi.
Alls seldust
sannar gjafir fyrir yfir 27
milljónir króna árið 2016 og er það algjört met. Ríflega 22 milljónir
króna söfnuðust auk þess fyrir Sýrland í desember.
Meðfylgjandi mynd birtist með fréttinni á vef UNICEF.