Metfjöldi flóttamanna í heiminum og gildistaka Parísarsamningsins fréttir ársins
Alþjóðabankinn birti á dögunum lista með tólf grafískum myndum sem bregða ljósi á nokkrar helstu fréttir nýliðins árs. Efst á blaði er metfjöldi flóttamanna í heiminum, næst kemur gildistaka Parísarsamkomulagsins um loftslagsmál, því næst samdráttur í heimsviðskiptum og í fjórða sæti er sú staðreynd að fleira fók hefur aðgengi að farsíma en rafmagni og hreinu vatni. Bankinn birti einnig myndband sem það gerði af þessu tilefni.