Frumbyggjar í Namibíu höfða skaðabótamál gegn Þjóðverjum
Fulltrúar tveggja ættbálka frumbyggja
í Namibíu, Ovaherero og Nama, hafa höfðað mál vegna meintra þjóðarmorða
nýlendustjórnar Þjóðverja á árunum 1904-1905 og krefjast skaðabóta.
Málið er höfðað fyrir dómstól í New York.
Auk kröfunnar um skaðabætur fara fulltrúar
ættbálkanna tveggja fram á að fulltrúar þeirra eigi sæti í
samningaviðræðum milli stjórnvalda í Þýskalandi og Namibíu. Slíkar
viðræður hafa verið í gangi á síðustu árum en hingað til hafa þýsk
stjórnvöld ítrekað neitað að viðurkenna þjóðarmorðin og hafnað kröfunni
um skaðabætur.
Talið er að 100 þúsund frumbyggjar í Namibíu hafi verið myrtir í útrýmingarherferð Þjóðverja.
Talsverð umræða um málið hefur verið í Þýskalandi á síðustu árum eins og sjá í
frétt sem birtist í Heimsljósi árið 2015.