Flóttafólk á gleymdum átakasvæðum fær stuðning frá Dönum
"Rúmlega 65 milljónir manna í
heiminum neyðast til að flýja heimili sín og þurfa á aðstoð okkar að
halda. Við heyrum sjaldnast af mörgum þessara átaka. En það dregur ekki
úr þörfinni fyrir mannúðaraðstoð. Þvert á móti. Hættan er sú að
alþjóðasamfélagið gleymi þeim," sagði Ulla Tørnæs utanríkisráðherra Dana
í fréttatilkynningu þegar hún greindi frá ákvörðun dönsku
ríkisstjórnarinnar að verja síðasta styrk ársins 2016 til "gleymdra"
átakasvæða í heiminum, einkum í Afríku.
Á
vef
Globalnyt í Danmörku segir að átök víðs vegar í heiminum leiði til þess
að milljónir manna fari á vergang en þessa sé sjaldan getið í dönskum
og alþjóðlegum fréttamiðlum.
Alls nemur styrkur dönsku
ríkisstjórnarinnar 118 milljónum danskra króna, eða um 2 milljörðum
íslenskra króna. Fjármununum verður fyrst og fremst ráðstafað til
afrískra þjóða eins og Miðafríkulýðveldisins, Suður-Súdan og Búrúndi,
auk Jemen á sunnanverðum Arabíuskaganum.