Afríkukeppnin hefst í vikulokin
Verið er að leggja lokahönd á undirbúning
Afríkukeppninnar í knattspyrnu en keppnin hefst í Libreville, höfuðborg
Vestur-Afríkuríkisins Gabon, næstkomandi laugardag, 14. janúar. Keppnin
fer fram á fjórum íþróttaleikvöngum í borginni en fyrsti leikurinn
verður á milli gestgjafanna og landsliðs Gínea Bissá.
Landslið Úganda tekur nú í fyrsta sinn um
langt skeið þátt í Afríkukeppninni en liðið var á dögunum valið besta
landslið Afríku á árlegri hátíð (GLO CAF) þar sem slíkar viðurkenningar
eru veittar. Þá var markvörður liðsins, Denis Onyango, valinn besti
knattspyrnumaður álfunnar, þ.e. af þeim sem spila innan Afríku. Af
alþjóðlegum stjörnum bar Riyad Mahres frá Alsír sigur úr býtum en hann
leikur sem kunnugt er með Englandsmeisturum Leicester.
Þrír leikmenn Leicester taka þátt í
Afríkukeppninni en mörg önnur ensk félagslið verða fyrir blóðtöku meðan
keppnin stendur yfir, en henni lýkur ekki fyrr en með úrslitaleik 5.
febrúar.
Þjóðirnar sextán sem taka þátt í
Afríkukeppninni 2017 eru Gabon, Fílabeinsströndin, Gana, Alsír, Túnis,
Malí, Búrkína Fasó, Lýðstjórnarlýðveldið Kongó, Kamerún, Senegal,
Marokkó, Egyptaland, Tógó, Úganda, Simbabve og Gínea Bissá.
Gabon in final preperations to host 2017 Cup of Nation/ AfricaNews
-
Enska úrvalsdeildin kveður þessa leikmenn í bili/ Vísir
-
Africa: CAF - Onyango, Uganda Cranes Best in Africa in 2016/ AllAfrica