Ungar konur og unglingsstúlkur í mestri smithættu vegna HIV
https://youtu.be/v1qDtQQODFk?list=PLm24qjjmwsqqKxVE3UlEB8Tvh5yrrFKn_ Knýjandi þörf er fyrir skjóta aðstoð til verndar stúlkum og ungum konum í sunnanverðri Afríku gegn alnæmi því þúsundir þeirra smitast af HIV veirunni í hverri viku.
Samkvæmt tölum sem birtar voru í
Windhoek í Namibíu á dögunum þegar UNAIDS gaf út skýrsluna "Fast-Track"
smituðust í hverri viku á síðasta ári 7.500 stúlkur og ungar konur á
aldrinum 15 til 24 ára í þessum heimshluta. Níu af hverjum tíu unglingum
sem smitast af veirunni eru stúlkur og dánartíðnin er há.
Í frétt UNAIDS segir að mörgum unglingsstúlkum sé ókunnugt um að þær
beri veiruna og þær leiti því ekki eftir aðstoð eða fái meðferð.
Skýringin er sögð sú að stúlkurnar geti ekki sagt foreldrum sínum að þær
hafi átt í kynferðislegu sambandi við eldri karlmann.
Á árabilinu frá 2010 til 2015
tókst að fækka nýsmituðum lítillega eða um 6% meðal þjóðanna sunnan
Sahara, úr 420 þúsundum niður í 390 þúsund. Ólíklegt þykir hins vegar að
markmiðið um að fækka nýsmituðum niður í 100 þúsund fyrir árið 2020
náist.
At last, an HIV prevention tool women can control?/ Devex
UNAIDS
announces 18.2 million people on antiretroviral therapy, but warns that
15-24 years of age is a highly dangerous time for young women/ UNAIDS
UN calls for urgent action to protect young women from HIV/Aids in Africa/ TheGuardian