Silfurfiskurinn á meiri virðingu skilið - ekki aðeins fæði fyrir fátæklinga og ferfætlinga
https://youtu.be/x1k0VNQun_o Konur í fiskimannaþorpinu Kiyindi í Buikwe héraði í Úganda
stofnuðu samtök árið 2010 í því skyni að auka verðmæti silfurfisksins:
mukene. Þær vildu líka auka virðingu fyrir þessum smágerða fiski sem
almennt var talinn fóður fyrir fátæklinga og ferfætlinga. Og þær vildu
með stofnun samtakanna afla fiskverkakonum aukinna tekna. Í upphafi voru
konurnar fimmtán í samtökunum Kiyindi Women Fish Processors
Association, nú eru þær áttatíu.
Logose segir vandað til vinnslunnar, allur fiskur sé þurrkaður á grindum en ekki á jörðinni með tilheyrandi óþrifnaði. Hún segir að flestar konurnar í samtökunum séu einstæðar mæður, hafi ekki fasta atvinnu og bæti lífsafkomu sína með starfi á vegum samtakanna. Að sögn hennar hafa samtökin náð þó nokkrum árangri í sölu á vörum sínum, nóg til þess að hafa átt þess kost að leggja dálítið fé til hliðar og hugmyndin sé að treysta reksturinn með því að hefja hænsnarækt.
Vilja vernda vatnið
Starf kvennanna í Kiyindi, sem er eitt af stærstu fiskimannasamfélögum í Buikwe, hefur vakið talsverða athygli í Úganda, ekki síst fyrir frumkvæði þeirra að þurrkgrindum fyrir silfurfiskinn sem áður var eingöngu sólþurrkaður á jörðinni. Logose hefur einnig talað ákveðið um gæði matvæla, um mikilvægi þess að konur standi saman í baráttunni fyrir betri lífskjörum og hún vill að gripið verði til aðgerða til verndar Viktoríuvatni og fiskistofnum þess. Þá sér hún fyrir sér að samtökin eignist hugsanlega í framtíðinni bát og þá fyrst geti hugsast að karlar fái inngöngu.