Mikil samvinna norrænu sendiráðanna í Kampala
Íslenska sendiráðið í
Kampala er í sambúð með danska sendiráðinu. Þar blaktir íslenski fáninn
við bláan himin flesta daga því veðursæld er mikil í þessari perlu
Afríku eins og heimamenn kynna landið sitt gjarnan.
Íslenska
sendiráðið er í miðborg höfuðborgar Úganda, Kampala, og ber ábyrgð á
alþjóðlegri þróunarsamvinnu milli Íslands og Úganda sem felur fyrst og
fremst í sér samvinnu við tvær héraðsstjórnir í landinu, í Buikwe og
Kalangala. Þar er um að ræða stuðning við grunnþjónustu héraðanna við
íbúana sem flestir hverjir lifa á fiskveiðum úr Viktoríuvatni.
Starfsmenn sendiráðsins eru níu talsins og þeir
kynna sig með nafni og starfsheiti í meðfylgjandi myndbandi auk þess
sem rætt er við Stefán Jón Hafstein forstöðumann sendiráðsins um
sambúðina við Dani og norrænt samstarf í Úganda.
Fésbókarsíða sendiráðsins í Kampala