Héraðshöfðingi í Malaví öflugur andstæðingur barnahjónabanda
"Í dag fóru starfsmenn sendiráðsins á fund með
Theresu Kachindamoto en hún er
héraðshöfðingi í Dedza. Kachindamoto er öflugur andstæðingur
barnahjónabanda og hefur komið í veg fyrir og ógilt yfir 1000 giftingar á
þeim tíma sem hún hefur verið héraðshöfðingi.
Barnahjónabönd eru alvarlegt og algengt
vandamál í Malaví en samkvæmt UNICEF eru allt að helmingur malavískra
stúlkna giftar áður en þær ná 18 ára aldri. Í þróunarsamvinnu sinni við
Malaví leggur Ísland áherslu á valdeflingu ungs fólks og kvenna og er
þessi barátta mikilvægur liður í því. Héraðshöfðingjarnir spila stórt
hlutverk í því að vinna gegn barnahjónaböndum og því er það frábært
skref að fá konu eins og Kachindamoto til liðs við okkur."
Þetta skrifaði
Ágústa Gísladóttir forstöðumaður sendiráðs Íslands í Malaví í Fésbókarfærslu á dögunum og birti eftirfarandi mynd með.