Eitt erfiðasta hlutskipti heims að fæðast í Miðafríkulýðveldinu?
https://youtu.be/GwzYa4_FD9Y Hætta er við hvert fótmál á þroskaskeiði barna og unglinga:
frá því að lifa af barnasjúkdóma, ganga í skóla, sleppa við þjónustu
við vígamenn, og kynferðislegt ofbeldi, svo eitthvað sé nefnt.
Heilbrigðiskerfið er að hruni komið, rétt eins og nánast öll opinber
þjónusta, sem varð illa úti í ofbeldisöldunni sem gekk yfir landið á
árunum 2012-2014.
Þannig hefst
frásögn á vef Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna um Miðafríkulýðveldið. Þar segir ennfremur:
"Ofbeldi hefur ekki verið með öllu upprætt þrátt fyrir beitingu alþjóðlegs herafla og lýðræðislegra kosninga fyrr á þessu ári.
Fyrsta þolraunin á æviskeiðinu er að
lifa af fæðingu. Samkvæmt tölum frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna,
UNICEF, deyja 9 af hverjum þúsund konum af barnsförum og eitt barn af
hverjum sjö deyr fyrir fimm ára aldur. Þetta er ein hæsta dánartíðni á
þessu aldursbili í heiminum.
Af þeim sem lifa til fimm ára aldurs þjást 41% af vannæringu en slíkt
hefur varanlegar afleiðingar og skaðar jafnt líkamlegan sem
vitsmunalegan þroska. Landið allt glímir við fæðuóöryggi og börn eru
fyrstu fórnarlömbin.
Versti staðurinn að alast upp?
Hundruð þúsunda barna alast upp fjarri
heimahögum og hafa bæst í hóp uppflosnaðra, annað hvort innan landamæra
ríkisins eða hafa flúið til nágrannaríkjanna. Um hálf milljón íbúa
Mið-Afríkulýðveldisins búa utan landamæranna og nærri fjögur hundruð
þúsund eru á vergangi innanlands.
Jafnvel áður en síðasta vargöldin gekk
í garð gekk aðeins þriðjungur barna í skóla samkvæmt tölum frá 2011-12.
Stúlkur ganga sjaldnar í skóla en drengir. Þær sæta of ofbeldi, eru
giftar á unga aldri og eignast börn enn á barnsaldri. Nærri þriðjungur
stúlkna giftast fyrir fimmtán ára aldur.
Þúsundir barna eru þvingaðar til að
þjóna í vígasveitum. 2,679 börn voru þvinguð til slíkrar "herþjónustu" á
síðasta ári að því er fram kemur í skýrslu aðalframkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna á síðasta ári.
Mið-Afríkulýðveldið var í síðasta sæti á
lista yfir þau lönd þar sem best væri - og verst- að alast upp, sem
skrifstofa breska samveldisins gaf út.
Þetta kemur fram í athyglisverðri
grein IRIN, fréttastofu
mannúðarmála, þar sem þeirri spurningu er velt upp hvort versti staður í
heimi til að alast upp sé Mið-Afríkulýðveldið.
Stofnanir Sameinuðu þjóðanna veita ríkisstjórn landsins stuðning í viðleitni sinni til að hlúa að ungu kynslóðinni.
Fyrr í mánuðinum var haldin í Brussel
ráðstefna og fjáröflunarsamkoma sem Evrópusambandið skipulagði.
Sameinuðu þjóðirnar tóku þátt í henni og forseti Miðafríkulýðveldisins,
Faustin Archange, kynnti
Landsáætlun u
m endurreisn og friðaruppbyggingu sem talið er að muni kosta þrjá milljarða bandaríkjadala næstu fimm árin."
Fréttaskýring IRIN: Central African Republic: The worst place to be young?