Ráðherra sveitarstjórnarmála í Malaví heimsækir Mangochihérað
Á dögunum heimsótti ráðherra
sveitarstjórna- og þróunarmála í Malaví Mangochihérað, gagngert til að
kynna sér þau verkefni sem héraðsstjórnin vinnur að í samvinnu við
íslenska sendiráðið. Ráðherrann heimsótti nýju fæðingardeildina í
Mangochibæ og eina af fjórum minni fæðingardeildum í dreifbýli. Auk þess
heimsótti hann tvo grunnskóla og vatnsból.
Heimsóknin hófst á skrifstofu héraðsstjórans
í Mangochi, þar sem þróunarstjóri héraðssins og Guðmundur Rúnar Árnason
verkefnisstjóri sögðu ráðherranum frá verkefnum undanfarinna ára og
undirbúningi fyrir framhaldið. Að því búnu var nýja fæðingardeildin í
Mangochibæ skoðuð. Allmargir slógust í för eins og myndirnar bera með
sér, sums staðar með söng og trumbuslætti.
Að loknum heimsóknum og lokafundi, þar sem ráðherrann, formaður héraðsstjórnarinnar og Ágústa Gísladóttir, forstöðumaður sendiráðsins í Lilongwe fluttu ávörp, lauk formlegri heimsókn. Ráðherrann lýsti mikilli ánægju með það sem hann hafði séð og þau verkefni sem unnið hefur verið að með stuðningi Íslands. Í ræðu hans kom m.a. fram, að umfang þessara verkefna er talsvert meira en hann hafði gert sér grein fyrir.
Í lok formlegrar dagskrár bauð ráðherrann
starfsfólk sendiráðsins að koma með sér til TA Nankumba og vera viðstödd
athöfn þar sem höfðinginn í Nankumba var hækkaður í tign, í Senior
Chief Nankumba. Þar var mikið fjölmenni samankomið og áhugavert að
fylgjast með. Höfðingjanum voru færðar góðar gjafir, ný rúmdýna, geit og
ýmislegt fleira.