Kenna þarf fólki að nota almenningssalerni, segir íbúi í Kikondo
https://youtu.be/Zm3f5n_fF8k Alþjóðlegi klósettdagurinn var
haldinn síðastliðinn laugardag, 19. nóvember. Í tilefni dagsins birtum
við á Fésbókarsíðu alþjólegrar þróunarsamvinnu Íslands meðfylgjandi
myndband frá þorpinu Kikondo í Úganda sem hefur nýlga fengið
almenningssalerni byggt fyrir íslenskt þróunarfé.
Á alþjóðlega klósettdeginum er athyglinni
jafnan beint að þeim jarðarbúum sem hafa ekki greiðan aðgang að
salernisaðstöðu og þeim sem neyðast til að ganga örna sinna á úti á
víðavangi. Fyrrnefndi hópurinn telur 2,4 milljarða og sá síðarnefndi 1
milljarð.
Aðgengi að viðunandi salernisaðstöðu er
fyrst og fremst heilbrigðismál eins og sést best á því að þar sem þessi
málaflokkur er óviðunandi glímir fólk við margs konar sjúkdóma, auk þess
sem efnahagsleg áhrif eru gífurleg vegna minni framleiðni sökum
veikinda. Þau kalla líka á lyf sem margir hafa ekki efni á.
Samkvæmt 6. Heimsmarkmiðinu á eigi síðar en
árið 2030 að vera búið að tryggja öllum jafnan aðgang að fullnægjandi
salernis- og hreinlætisaðstöðu "og endir verði bundinn á að menn þurfi
að ganga örna sinna utan dyra, þar sem sérstakri athygli er beint að
þörfum kvenna og stúlkna og þeirra sem eru í viðkvæmri stöðu," eins og
segir orðrétt í einu af undirmarkmiðunum.
Fyrir íslenskt þróunarfé er í öllum þremur
samstarfsríkjum okkar, Malaví, Mósambík og Úganda, verið að styðja héruð
í vatns- og salernismálum. Í Úganda hafa á síðustu misserum verið byggð
almenningssalerni í fiskimannaþorpum í Buikwe héraði og við marga
grunnskóla. Í þorpinu Kikondo lýsa íbúar því í meðfylgjandi myndbandi
hversu mikilvægt það er að fá almenningssalernin því áður hafi fólk gert
þarfir sínar hvar sem er. Eins og ein kvennanna lýsir ástandinu þarf
engu að síður að kenna fólki að nota almenningssalerni og ganga
snyrtilega um þau; bæta þurfi hreinlætið mikið og það vanti sápu.
Addressing the urban sanitation crisis: Time for a radical shift, eftir Martin Gambrill/ Alþjóðabankablogg
Helping children survive and thrive: How toilets play a part, eftir Claire Chase/ Alþjóabankablogg
On World Toilet Day, UN spotlights impact of sanitation on peoples' livelihoods/ UN
6 key challenges to achieving universal access to sanitation by 2030/ Devex