Allt gert til að koma í veg fyrir mænusóttarfaraldur í Nígeríu
Umfangsmikið bólusetningarátak gegn mænusótt stendur nú yfir í Nígeríu eftir að þrjú tilvik af veikinni greindust í norðausturhluta landsins þar sem mörg hundruð þúsund börn er í lífshættu vegna vannæringar. Yfir 40 milljón börn verða bólusett til að hindra að mænusóttarfaraldur brjótist út, enda hafði ekkert tilfelli komið upp í Afríku í tvö ár þegar þetta gerðist og í sjónmáli er að útrýma þessum skæða sjúkdómi á heimsvísu, segir í frétt frá UNICEF á Íslandi.
Um leið og börnin í Borno-héraði í Nígeríu
eru bólusett eru þau skimuð fyrir vannæringu og vísað í meðferð við
henni ef þörf krefur. Í gegnum bólusetningarátakið er þannig hægt að ná
til barna sem eru vannærð og veita þeim hjálp.
Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi vegna vannærðra barna í Nígeríu og nágrannaríkjunum
er enn í fullum gangi og hægt er að styrkja hana með því að senda sms-ið BARN í númerið 1900 (1.000 kr). Einnig er hægt að styrkja neyðarsöfnunina hér eða með því að leggja inn á neyðarreikninginn: 701-26-102050 (kt. 481203-2950).
Ómetanlegur stuðningur
Yfir 12 milljónir króna hafa safnast í
neyðarsöfnuninni hér á landi."Mörg þúsund manns hafa stutt söfnunina og
það er okkur mjög mikilvægt að finna þennan mikla stuðning. Þetta er
ómetanlegt, enda er neyðin á svæðinu gríðarleg og þörf á að stórauka
aðgerðir UNICEF. Í húfi eru raunveruleg líf, raunveruleg börn og
raunverulegur möguleiki á að koma í veg fyrir að þau láti lífið," segir
Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.
Síðastliðna mánuði hafa 131.349 börn fengið
meðferð gegn vannæringu í norðausturhluta Nígeríu, þar sem ástandið er
verst. Auk þess hafa börn annars staðar í landinu fengið hjálp, sem og í
nágrannaríkjunum.
Árangri í baráttu við mænusótt ógnað
Mænusóttartilfellin sem upp komu nýverið bætast
ofan á einstaklega erfiða stöðu á svæðinu. Sums staðar í Borno-héraði í
Nígeríu eru allt að 15% barna alvarlega bráðavannærð.
Þar sem margir flóttamenn eru á ferð yfir
landamærin er hætta á að mænusótt breiðist út til nágrannaríkjanna og
því mikilvægt að hafa hraðar hendur á til að hemja útbreiðslu veikinnar.
Bólusetningarnar fara af þessum einnig fram í Níger, Tsjad, Kamerún og
Mið-Afríkulýðveldinu.
"Við gerum allt sem við getum ásamt
samstarfsaðilum okkar til að koma í veg fyrir að veikin breiðist út.
Umfang viðbragðanna sýnir alvarleika aðstæðnanna," segir Bergsteinn
Jónsson.
Gríðarlegur árangur hefur náðst í baráttunni
gegn mænusótt á heimsvísu og Nígería er eina landið í Afríku þar sem
ekki hefur tekist að útrýma sjúkdómnum. Ríki er talið laust við hann
þegar engin tilfelli hafa greinst þar í þrjú ár. Í Nígeríu hafði náðst
tímamótaárangur og ekki orðið vart við mænusótt í tvö ár þegar tilfellin
þrjú komu upp í norðausturhluta landsins. Mikið kappsmál er því að
hindra frekari útbreiðslu sjúkdómsins, samhliða því að meðhöndla börn
gegn vannæringu.
Nánari upplýsingar um ástandið í Nígeríu
Kynslóð barna hefur horfið, dáið/ Mbl.is
Boko Haram's forgotten victims return to a humanitarian disaster/ TheGuardian