Utanríkisráðuneytið styrkir fræðsluverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar
Hjálparstarf kirkjunnar hefur hlotið 500 þúsund króna styrk
vegna fræðsluverkefnisins Stefnumót við fólk frá Eþíópíu. Verkefnið
snýr að því að fólk frá Eþíópíu komi til Íslands til að hitta og
uppfræða íslensk ungmenni um líf, aðstæður og menningu í Eþíópíu. Einnig
gera gestirnir grein fyrir því hvernig þróunarsamvinnuverkefni getur
skilað árangri og eflt samfélög. Stefnt er að því að gestirnir hitti
allt að tvö þúsund íslensk ungmenni í fermingarfræðslu, auk ungmenna í
framhaldsskólum og fullorðna.
Fræðslu- og kynningarstyrkir
utanríkisráðuneytis um þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð eru liður í
viðleitni ráðuneytisins til að auka stofnanafærni íslenskra
borgarasamtaka og efla faglega þekkingu þeirra á málaflokknum. Enn
fremur er þeim ætlað að auka þekkingu almennings á þróunarsamvinnu og
mannúðaraðstoð og aðkomu borgarasamtaka á þeim vettvangi.
Tekið er við umsóknum vegna fræðslu- og kynningarstyrkja tvisvar á ári og er umsóknarfrestur til miðnættis 15. mars og 15. september ár hvert. Að þessu sinni bárust þrjár umsóknir um styrk vegna fræðslu- og kynningarverkefna og þótti ein umsókn uppfylla öll skilyrði sem gerð eru samkvæmt stefnumiði og verklagsreglum utanríkisráðuneytisins um samstarf við borgarasamtök.
Nánari upplýsingar um umsóknarferlið sem og öll viðvíkjandi stuðningsgögn má finna á
vef alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands.