Ísland áttunda árið í röð í efsta sæti í kynjajafnrétti
5 Surprising Gender Gap Facts Áttunda árið í röð eru Íslendingar í efsta sæti á lista yfir
þjóðir heims þegar horft er til jafnréttis kynjanna. Samkvæmt árlegri
skýrslu -
Global Gender Gap Report 2016
- hafa Íslendingar náð að draga að mestu úr kynjamismun, eða um 87%.
Launamunur kynjanna ræður mestu um að árangurinn er þó ekki meiri.
Norðurlandaþjóðirnar raða sér í efstu sæti listans, að Dönum
undanskildum, en athygli vekur að Afríkuríkið Rúanda er í fimmta sæti.
Haldi þróun í jafnréttismálum áfram með
sama hætti og verið hefur getur stúlkubarn sem fæðist í dag vænst þess
að jafnrétti kynjanna verði að fullu náð þegar hún verður 83 ára.
Jemen, Pakistan og Sýrland eru í neðstu sætum listans