Fiskur á disk landsmanna! Markmið tilapíufiskeldis í Mósambík með stuðningi Íslands og Noregs
Þann 27. september síðastliðinn héldum við í sendiráði Íslands í
Maputo í eftirlitsferð til Gaza fylkis, nánar tiltekið til Chokwe
héraðs, til að fylgja eftir framvindu framkvæmda og uppbyggingar
rannsóknar- og fiskeldisstöðvarinnar, CEPAQ, verkefnis sem Ísland styður
ásamt Noregi í fiskimálum í Mósambík. Ferðin var farin með aðilum úr
norska sendiráðinu ásamt ráðgjöfum frá CDCF (e. Centre for Development
Cooperation in Fisheries), Norges Vel og Norad (e. Norwegian Agency for
Development Cooperation) frá Noregi. Rannsóknar- og fiskeldisstöðin er
tilbúin til afhendingar svo tilgangur ferðarinnar var að skoða aðstæður
og kynnast því hvað verður gert á næstu misserum. Við fengum leiðsögn um
ræktunarsvæðið og kíktum inn í sjálfa rannsóknarstöðina, og hlustuðum á
kynningu um áætlun ræktunarinnar. Einnig heimsóttum við bónda sem rekur
fyrirtækið Papa Pesca, sem upphaflega var ætlað til fiskeldis en eins
og stendur er þar kjúklingaræktun, á landsvæði nálægt sem kallast "terra
morta" eða dauða jörðin. Það landsvæði er talið hafa mikla möguleika
fyrir þróun fiskeldis, en landið er ekki gott sem ræktunarland þar sem
jarðvegurinn er saltur. Áætlað er að tilapíuræktunin verði á sex hektara
landsvæði.
CEPAQ stöðin hefur verið kölluð "climate
smart facility" þar sem hún er hönnuð með tilliti til loftslags- og
umhverfis-aðstæðna.
Upplýsingar frá veðurstofunni í Chokwe voru greindar
áður en stöðin var hönnuð og þróuð, og má til dæmis sjá pumpu, stíflu
og vara orkugjafa ef ske kynni að rafmagn fari af vegna flóða eða annara
áhættuþátta.
Upphaf CEPAQ má rekja til ársins 2012 þegar ráðgjafar hjá CDCF voru
beðnir um að gera úttekt á yfirstandandi verkefnum skipulögðum undir
Áætlun fiskimálaráðuneytisins (e. Fisheries Master Plan). Á þessum tíma
voru þrjú rannsóknar- og fiskeldis/þróunar-setur (R&D centres) hluti
af Áætluninni, eitt í Marracuene og tvö í Gaza. Rannsóknar- og
fiskeldisstöð í Gaza, sú sem núna er CEPAQ, var komin lengst á veg hvað
framkvæmd varðar en það vantaði þó ýmislegt upp á. CDCF var því beðið um
að aðstoða fiskimálaráðuneytið við að þróa nýtt plan fyrir CEPAQ og
skilgreina hlutverk þess í þróun fiskeldis til skamms og lengri tíma
litið. Með hliðsjón af úttekt CDCF var ný áætlun gerð fyrir CEPAQ
stöðina. Nýja áætlunin lagði til að aðeins verði ræktuð tilapía á
ræktunarstöðinni en ekki margar tegundir í einu þar sem mikill skortur
var á mannauð, þekkingu og reynslu, auk þess sem að stafaði mikið
óöryggi af því að rækta fleiri en eina fiskitegund í sömu stöðinni.
Hugsunin var sú að það þarf að byrja að læra að ganga áður en farið væri
að hlaupa, það er, að ætla sér ekki of mikið í einu.
Fiskur og næring
Ræktun og þróun fiskeldis er eitt af
forgangsatriðum fiskimálaráðuneytisins og er samkvæmt mósambískum
stjórnvöldum mikilvægur liður í að efla heilbrigði landsmanna þar sem
mikil næring fæst með því að leggja sér fisk til munns.
Tíu milljón seiði er nóg til að
framleiða þrjú til fimm þúsund tonn af tilapíu. Í öðrum orðum er það
fimmtán sinnum meira en árleg framleiðsla í öllu landinu er núna. Þannig
að framleiðslan sem nú er í bígerð á eftir að hleypa tilapíu
framleiðslu af stokkunum á "terra morta" svæðinu í Chokwe.
CEPAQ er ætlað að vera "three-in-one"[1]
aðstaða sem hefur að minnsta kosti 50 ára líftíma ef það verður
almennilegt viðhald á stöðinni. Í grundvallaratriðum er enginn
hátæknibúnaður til staðar og flestur tækjabúnaðurinn er keyptur á
staðnum með staðbundinni þjónustu og ábyrgu fyrirkomulagi - sem er liður
í að þróa samfélagið í kringum stöðina.
Tegundirnar af tilapíu sem verða ræktaðar eru Mossambicanus og
Niloticus. Ástæðan fyrir því er að sérstök áhersla verður lögð á ræktun
Mossambicanus er sú að hún er innfædd (staðbundin) tegund í Mósambík svo
ræktunarskilyrðin eru góð, hún hefur mikið salt þol og það er markaður
fyrir hana bæði innanlands og í nágrannalöndunum. Mossambicanus finnst
villt á tveimur stöðum í Inhambane fylki - í Govuro ánni og Ximite vatni
í Vilankulo, í Gaza fylki, í Bilene vatni sem er ekki svo langt frá
Chokwe, og svo í Maputo fylki, í Pandejne vatni, Catuane ánni. Eins á
svæðum norðan Zambéziu árinnar, en sökum pólitísks ástands í landinu
verður byrjað að safna villtum fiski í suðurhluta landsins.
Mökunarferlið á Mossambicanus verður í
lotum þ.e.a.s. þrjár samsetningar verða í hverri lotu og tíu fjölskyldur
í hverri samsetningu. Það eru 50 seiði í hverri fjölskyldu. Seiðin eru
valin eftir frammistöðu og út frá DNA og merkinga (e. PIT tags). Reynt
er að varast innrækt eða skyldraæxlun. Markmiðið er að fá góðan
grunnstofn með erfðafræðilega fjölbreytni og til að fá fram góða og
söluvæna vöru/stofn. Ef þörf er á væri einnig hægt að framleiða seiði
sem væru síðan dreifð út til gróðrastöðva/fiskræktenda. Slík seiði er
auðveldlega hægt að flytja á milli langar vegalengdir í bíl, rútu eða
flugvél. Það er aðeins spurning um þjálfun og stjórnun á CEPAQ.
Helstu verkefni og deildir innan CEPAQ
stöðvarinnar eru; genastyrking (e. genetic enhancement), ræktunarmarkmið
(e. breeding objectives), og fiskeldisstöð (e. hatchery) sem krefst
starfsfólks allan sólarhringinn til að framleiða kynbreytt hágæða seiði,
auk ræktunarstöðvar (e. grow-out area) þar sem verður aðstaða til
þjálfunar bænda og prófunar á aðferðum sem og rannsóknaraðstaða fyrir
nemendur, flóðavarnir, og lífvarnir (e. biosecurity). Stöðin er hönnuð
með það í huga að allar deildir starfa sjálfstætt og það eru háar
öryggis lífvarnir svo ekki sé hætta á að smit berist milli deilda.
Tæknilega er stöðin einföld þar sem að hún var hönnuð út frá tækni sem hefur sýnt árangur í marga áratugi aðallega í Asíu. Áherslan hefur því verið á að þróa sterkbyggt kerfi sem nýtist í Afríku og sérstaklega fyrir mósambískar aðstæður.
Sjálfstæð stofnun?Það er einhljóma álit
fiskimálaráðuneytisins og samstarfsaðilanna að CEPAQ eigi að vera
sjálfstæð stofnun sem sér um eigið starfsfólk og sjái til þess að
einhver standi vaktina allan sólarhringinn í fiskeldinu. Aftur á móti
samþykkti fjármálaráðuneyti Mósambíkur ekki CEPAQ sem sjálfstæða stofnun
og þar af leiðandi hefur starfsemin ekki farið af stað samkvæmt áætlun.
Upphaflega var CEPAQ ætlað að framleiða sex milljón seiði árið 2015 og
svo 30 milljón árið 2017. Fjármálaráðuneytið hefur verið að taka
fiskimálaráðuneytið í gegn sem hefur í för með sér fækkanir á
sjálfstæðum stofnunum og fékk CEPAQ að gjalda þess. Núna hefur CEPAQ
einhverskonar sjálfræði en það þarf að skila skýrslum og þess háttar til
yfirmanna sem þýðir að stjórnunin og ákvarðanir fara í gegnum fleiri
stig sem eykur skrifræði og hægir á framleiðsluferlinu. Ákveðið hefur
verið að bjóða rekstur CEPAQ út til einkaaðila til að koma
seiðaframleiðslunni af stað, en stöðin mun þurfa fjárstuðning næstu fimm
til tíu árin ef vel á að takast að þróa tílapíu iðnað í Mósambík.
Stefna stjórnvalda er að einbeita sér algjörlega að tilapíu rækt fyrir framtíðina. Unnið er að gerð aðgerðaráætlunar fyrir fiskeldi og að því að gera lagarammann aðlaðandi fyrir fjárfesta úr einkageiranum. Mósambísk stjórnvöld munu þróa "terra morta" svæðið enn frekar þar sem það er talið að um mikla möguleika sé að ræða fyrir þróun fiskeldis fyrir bændur, eða svokallaða "aquaparks". Hlutirnir eru því loksins farnir að þokast í rétta átt eftir þó nokkuð langa biðstöðu sem stafaði meðal annars af endurskipulagningu í fiskimálaráðuneytinu.
[1] "Three-in-one" aðstaða þýðir að CEPAQ er "climate smart", "bio-secure", og "robust facility", byggt til að endast í 50 ár.