Áskorun borgarasamtaka til nýrrar ríkisstjórnar
Í morgun birtu framkvæmdastjórar níu
borgarasamtaka sem starfa að alþjóðlegu mannúðar- og hjálparstarfi
grein í Fréttablaðinu með áskorun til nýrrar ríkisstjórnar um hærri framlög til þróunarsamvinnu.
"Um áratugaskeið hafa íslensk stjórnvöld
stutt markmið Sameinuðu þjóðanna um að velmegunarríki verji sem
samsvarar 0,7% af vergum þjóðartekjum til að styðja við fátæk og óstöðug
ríki. Á síðasta ári vörðu íslensk stjórnvöld hins vegar 0,24% af vergum
þjóðartekjum til málaflokksins og 0,23% árið 2014. Hæst var framlag
Íslands 0,37% árið 2008.
Markmið með þróunarsamvinnu Íslands er tvíþætt:
Í fyrsta lagi að "styðja stjórnvöld í þróunarlöndum við að útrýma
fátækt og hungri, stuðla að efnahags- og félagslegri þróun, þ.m.t.
mannréttindum, menntun, bættu heilsufari, jafnrétti kynjanna og
sjálfbærri þróun" og í annan stað að "tryggja öryggi á alþjóðavettvangi,
m.a. með því að stuðla að friði og gæta hans, vinna að uppbyggingu og
veita mannúðar- og neyðaraðstoð."
Það eru viðsjárverðir tímar. Átök geysa víða og
af þeim sökum neyðist fólk jafnvel til að flýja heimili sín.
Náttúruhamfarir, fátækt og skortur á menntun (einkum stúlkna) verða til
þess að ástandið versnar. Ein afleiðing er aukinn fjöldi flóttafólks sem
leitar til Evrópu og þar með talið Íslands. Er ekki kominn tími til að
snúa vörn í sókn?
Við undirrituð, sem erum í forsvari fyrir
hjálpar- og mannúðarsamtök í alþjóðlegu hjálparstarfi, skorum á verðandi
ríkisstjórn og nýkjörið Alþingi að verða við yfirlýstum vilja þings og
þjóðar og hækka framlög Íslands til þróunarsamvinnu þannig við getum
aðstoðað fólk á heimslóðum þess, greitt götu kynjajafnréttis og eflt
menntun stúlkna og drengja sem er forsenda aukinnar velferðar og
velmegunar. Enginn vill þurfa að flýja, hvorki heimili sitt né
heimaland, og hvað þá að láta lífið vegna fátæktar, hungursneyðar eða
hamfara sem má koma í veg fyrir með aukinni samvinnu ríkra þjóða og
fátækra.
Standið við stóru orðin. Það er löngu orðið tímabært - og aldrei þarfara en nú."
Bergsteinn Jónsson
frkvstj. UNICEF á Íslandi
Bjarni Gíslason
frkvstj. Hjálparstarfs kirkjunnar
Erna Reynisdóttir
frkvstj. Barnaheilla - Save the Children á Íslandi
Fríður Birna Stefánsdóttir
frkvstj. ABC barnahjálpar
Inga Dóra Pétursdóttir
framkvæmdastýra Landsnefndar UN Women á Íslandi
Kristín S. Hjálmtýsdóttir
frkvstj. Rauða krossins á Íslandi
Ragnar Gunnarsson
frkvstj. Kristniboðssambandsins
Ragnar Schram
frkvstj. SOS Barnaþorpa
Selma Sif Ísfeld Óskarsdóttir
formaður Alnæmisbarna